Tryggingastofnun þess trúlega gætir
trúföstum launa með verri hag.
Fátæktartalið fjandskapnum mætir
félausa liðið skal halda þeim brag.
Að fáeinum aurum á botninn bætir
svo bólgni sjóður og komist í lag.
Svo er á fátæka lagt að furðu sætir.
og félagslegt undur að lifa í dag.
Bökin breiðu
baki snúa
reyna reiðu
rauða hnúa
Amma mín sáluga önnur var alltaf með hugann við verkalýðsbaráttu og kennid mér þetta forðum daga og
sagði að mórallinn væri sá, að sá sem á, sig ekkert lætur varða þá sem naga eydda garða, en hefur stefnu harða sem bitnar þá á þeim sem skorta alt nema högg blóðugra hnefa í sinn búk
.
Þakka þér innilega fyrir þitt innlegg.
Ég vil afsaka að þessi samsetningur er ekki í alla staði sá er ég vænti, það eru í honum brot sem ég áttti að aðgæta áður en hún var flutt hingað. Tungubrotið er í setningunni, er svo á fátæka lagt. Að öðru leiti met ét ég framlag þitt.
Nei sko ! Nýr lúmupúkaþráður...
lúrir í laumi
lítill þráður
drepur í draumi
drengur bráður
Bökin eru breið
boð þeirra eru greið