Nú fylgir eitthvað dreifirit með einum af falsmiðlunum sem prangað er uppá saklausa borgara á hverjum morgni, dreifirit sem gefur sig út fyrir að vera gefið út á vegum einhverra iðnnema. Svosem er það nú í góðu lagi, iðnnemar mega gefa út blað eins og aðrir nemar, en eitt stakk mig í augun, og það er sjálf forsíða blaðsins. Þar gefur að líta par af brjóstum, svitastorkið og atað í olíu, rétt yfir vélarrúmi bifreiðar. Mín spurning í framhaldi af þessu er: á hvaða verkstæði vinna þessi brjóst?
Svei 'attan að hafa ekki séð þessa dýrð.
Hlakka til að koma heim úr vinnuni og gapa á þetta.
Eða ætti ég kannski ekki að gera það?
klórar sér í höfðinu
Ég geri fastlega ráð fyrir að um sé að ræða kvenmann frekar en svo umfangsmikinn iðnaðarmann að flesk hans lafir á ýmsum stöðum.
Ekki satt ??
Ég geri fastlega ráð fyrir að um sé að ræða kvenmann frekar en svo umfangsmikinn iðnaðarmann að flesk hans lafir á ýmsum stöðum.
Ekki satt ?
Nú fyrir þá sem það vilja hlyti það að vera hrein himnasending!
Starir þegjandi út í loftið
Jú myndin sýnir iðnaðarkonu, eða ég sé ekki betur. Skemmtilegt að bera þessa forsíðumynd við aðra mynd af iðnaðarkonu í sama fagi sem er inn í blaðinu.
Ekki sjáanlega. Þær, eða öllu heldur hún, er í vönduðum iðnaðarmannagalla með rennt uppí háls.
Já auðvitað! Hvað varð um Teri Garr? Þetta verð ég að vita.
Skellir sér í heimildaöflun
klórar sér í höfðinu
Aþena, ef þú klórar þér svona mikið í höfðinu eins og þú hefur verið að gera undanfarið, þá rifnar höfuðleðrið af þér.
Áhugamenn um iðnaðarbrjóst í danmörku hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
"Sökum öskufalls höfum við ekki komist yfir eintak af téðu blaði, þar sem umrædd brjóst koma fram. Óskum við vinsamlegast eftir því að einhver góðhjartaður einstaklingur stilli þeim upp á heimasíðu hið snarasta, og að viðkomandi slóð sé sett inn á spjallið".
God fornøjelse.