Tvær fréttir í Mbl.is; Hundur rekur innbrotsþjóf á flótta og Hundur hrekur kindur fram af bjargi. Nú þyrftu þeir bara að sameina krafta sína og þá er þess ekki langt að bíða að þeir hreki innbrotsþjófa landsins fram af bjargbrúnum hér og þar um landið. Og hver þarf Securitas þá?
Nú Securitas gæti fengið þann starfann að fiska líkin úr sjónum, það væri auðvitað ekki hægt að hafa sakamenn fljótandi allt í kringum landið eins og ofvaxnar marglyttur, það myndi gersamlega skemma alla stemmingu í fjölskyldu fjöruferðunum, svo ekki sé minnst á þau neikvæðu áhrif sem slík sakamannasúpa kynni að hafa á gæðastimpil þann sem íslenskt sjávarmeti hefur á erlendum mörkuðum.
Eru þetta fíknaefnahundar eða óbreyttir?
Tvær fréttir í Mbl.is; Hundur rekur innbrotsþjóf á flótta og Hundur hrekur kindur fram af bjargi. Nú þyrftu þeir bara að sameina krafta sína og þá er þess ekki langt að bíða að þeir hreki innbrotsþjófa landsins fram af bjargbrúnum hér og þar um landið. Og hver þarf Securitas þá?
Ekki galin hugmynd.
Þú ert nú óttarlegur hundur í þér Voff, hví heldur þú ekki hundaráðstefnu og leggur þá fram þessa tillögu þar??
Heyrðu ég veit hvaða hundur þetta er sem hrakti rollurnar fram af bjarginu. Þetta er eini starfandi blindrahundurinn á landinu. Eftir að hann kom til landsins hefur blindnum fækkað.
Afhverju skildi það vera. fer að hugsa
Kemur að Frelsishetjunni þar sem hún situr afar hugsi
Hæ labbakútur, hvað ertu að gera?
Ekkert svar berst Frelli er djúpt sokkinn í íhugun
Hehehe
Málar trúðsandlit framan í Frella og skellir á hann einum spanjólahatti
Mér lýst vel á ykkur voffana.
Við dýrin verðum að standa saman... kannski að tígrisdýr gætu fengið vinnu í securitas?
Meina.. hver færi að brjótast inn í hús með tígrisdýri í?
Mér lýst vel á ykkur voffana.
Við dýrin verðum að standa saman... kannski að tígrisdýr gætu fengið vinnu í securitas?
Meina.. hver færi að brjótast inn í hús með tígrisdýri í?
Nú Indverji á fíl!
Eða veiðiþjófur!