Það væri gaman að sjá Ólaf Ragnar, Davíð eða Halldór standa upp,láta sem ekkert væri eftir að hafa brotið bein, ég held að stjórnmálamenn á Íslandi ættu að fara nokkur ár í æfingabúðir hjá Kastró, læra hvernig skæruliðar harka af sér. Eða til Bubba og láta berja sig tvo daga í viku. Hvað finnst þér?
Ég mundi taka ofan fyrir honum ef ég hefði ennþá hjálminn minn. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég mundi taka ofan fyrir honum ef ég hefði ennþá hjálminn minn. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Já. Hvar er gamla myndin? Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það væri gaman að sjá Ólaf Ragnar, Davíð eða Halldór standa upp,láta sem ekkert væri eftir að hafa brotið bein, ég held að stjórnmálamenn á Íslandi ættu að fara nokkur ár í æfingabúðir hjá Kastró, læra hvernig skæruliðar harka af sér. Eða til Bubba og láta berja sig tvo daga í viku. Hvað finnst þér?
Góð ábending. Minnist myndarinnar hugljúfu af Óla handleggsbrotnum í örmum huggandi Dorritar.
Castro bar sig eins og sönnum karlmanni sæmir; gerði að gamni sínu og virtist ekkert kippa sér upp við að vera brotinn og beyglaður. Aðdáunarvert að sjá svona spræk gamalmenni.
Castro hefði sómt sér vel í gulleitinni í Yukon í gamla daga. Þar var sko ekkert pláss fyrir væluskjóður. Skál fyrir Castro! Lyftir glasi
Já skál fyrir honum!(Í kóki samt, nema að ákavíti sé 0%...)
En hve gamall er náunginn annars?
Hann er 78 ára ungur, blessaður kallinn.
Nú hefði maður haldið að þetta væri alveg ótrúlega andstyggðar vont. Annað hvort er Castro svona glerharður af sér eða þá að gamalt fólk finnur ekki eins mikið til og ungt fólk. Annars þá sýnir þetta og sannar gildi þess að berjast við beinþynningu. Castro hefði betur gengið í lið með Ellert Schram og Þorgrími Þráinssyni. [biðst afsökunar á að hafa kallað Þorgrím Þorfinn]
Þorfinnur??(=Þorgrímur?) Ég fann nú keim af samsæri þarna. Myndatakan sýndi mann renna fæti léttlega undir Kastró, djöfulsins kapítalistar....