Jæja, bara búinn að bóna. Þetta er allt annað. Má ég koma inn á skónum?
Gerðu svo vel Golíat. Ég þarf að losna við Humarteruna, áður en rjóminn bráðnar af henni. Viltu smakka?
Endilega og blút í ákavíti með, það er víst kominn föstudagur.tekur höfuðstökk af kátínu, en sparkar í leiðinni óvart í tertudiskinn, þannig að hann þeytist út í horn og mölbrotnar en tertan slettist yfir gesti kaffihússins
Ó, afsakið mig, þetta fer á risnureikning Geimferðaráðuneytisins.Sest niður í makindum
Áttu ekki meiri tertu?
Bölvaður ruddaskapur er þetta. Við Bauv erum búnir að vera á kafi í hreingerningum upp fyrir haus, svo er bara sóðað svona og heimt að fá nýja tertu... Blótar herfilega og rífur hár sitt Hérna Golíat!
Réttir Golíat Blút með Ákavíti og gólftusku Hreinsaðu þetta upp eftir þig!
Láttu ekki svona, gólfið er glerhált síðan þú bónaðir. Svo áttu ekki að vera að veifa einhverjum tertuleifum hér í þrengslunum. blikkar Hundingja og bætir við í lágum hljóðum Láttu bauv þrífa þetta, til hvers að hafa "meðeiganda" ef þú þarft að vinna öll skítverkin sjálfur.Hærra svo Bauv heyri Þetta er annars fyrirmyndar þjónusta hérna.
Djöfuls þjónusta er þetta, ég er farinn á NærbuxurnarStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér, berleggjaður
Það var lokað sástu það ekki ef ég og hundinginn erum ekki þá er lokað.
Og þið eruð ekki eða hvað?
Að vera eða vera ekki, þarna er efinn...
Það var lokað sástu það ekki ef ég og hundinginn erum ekki þá er lokað.
?Ein setning?
Ekki margir sem komast upp með þetta
4 setningar, en aðeins 1 málsgrein, hann ætti ekki að komast upp með þetta.
Panta tíma fyrir hann í gálganum? hoppar af kæti
Reisir gálga
Hengdur á eigin kaffihúsi - fyrirsögninn á morgun
Ójá ! Finnst keisaralegu aftökurnar fara frekar hægt af stað...
fægir fallöxina
bindur reipið utan um flöskuhálsinn
Krumpa, fægðu frekar upptakarann - Við erum að eiga við kókflösku.
Má ég þá ekki hengja bauv ? Brestur í óstöðvandi grát og horfir bænaraugum á eiginmanninn...
Hvar svo glæpamaðurinn? Ég er tilbúinn með böðulsgrímuna og allt
Ójá, við erum að eiga við bauv, ekki Kókið sker reipið af hálsi Coca Cola
Gerssvovel
Hengd'ann! passaðu þig samt, apar eru sleipir andskotar