Skál öll sömul, það eru forréttindi að laumupúkast.
rennur á rjúpuviskílyktina
Það er afar langt síðan ég hef laumast hingað inn. Ánœgulegt að koma aftur. Ljómar upp
Shit hvað þetta er ruglaður þráður!
er ég núna orðinn laumupúki?? skrifar tvípunkt og sviga
Þar sem þú hefur opnað boxið er ekki aftur snúið...Skál
Hæ hó hæ hó
í laumupúka skó....
laumast....
er eitthvað til í sögusögnum um að Baggalútíska árásaráðuneytið hafi undirritað tvíhliða samning við Færeyinga um fækkun langdrægra trillukarla?
Hver segiru að sé árásarráðherra?
Aha leynilegar umræður um spillingu æðstu ráðamanna...
Ég biðst velvirðingar á því, en þetta innlegg sem hér stendur er skrifað í þeim tilgangi einum að ég geti fengið mér betri einkennismynd. (Hvar annar staðar gæti ég skrifað það en hér á laumdrykkjuþræðinum?)
Stundir.
Kæri Smábaggi.
Vitleysa í þér. Myndin af þér er í einu orði sagt stórfengleg. Þú verður að gera þér grein fyrir því að Svínka er hetja og varlega verður að fara í alla gagnrýni. Ég gef þér 2 stjörnur fyrir að hafa fundið þennan þráð, en jafnframt falleinkunn fyrir fölvskalausa bölsýni.
Góðar stundir.
P.s. vinsamlegast hættu öllum ritstuldi, s.s. eins og að skrifa "stundir" í lok svara þinna, annars kaffæri ég þig í Bjúrókratisma.
Virðingafyllst
Leibbi Djazz.
Ristuldur? Ég? Lítur til beggja átta, flýr en hrasar. Stendur aftur upp og flýr sem fætur toga.
Mikið óskaplega er mikið af nýjum andlitum um allan Baggalút þessa dagana, maður verður hreinlega ruglaður! Gerir eins og ruglaðir gera
Sumir eru nú gæðaskinn, það má vera ljóst, og aðrir eru líklegast gæðaskinn líka þó það sé stundum með öllu óljóst. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
En hér er þó þægilegt að koma, okkur gamlingjana þyrstir að vera þar sem lætin í ungviðinu eru ífið minni býst ég við. Svoleiðis er það víst í öllum dýrategundum og þar eru lútar líklega engin undantekning
Gaman að sjá þig aftur gamli minn. Sestu hér í ruggustólinn við arininn og við skulum rifja upp gamla tíma.
Sest í ruggustól, dregur yfir sig ullarteppi, treður í pípu og horfir friðsælum augum í eldinn.

Alveg afbragðs hugmynd Smeigir sér í mokkasíur, tillir sér í ruggustól og dregur upp forláta kóbaltpípu sem snarlega er fyllt "ÚltraKóbalti"
Manstu til dæmis eftir gömlu myndinni hans Vladimirs, það var þá mikil bót þegar hann náði sér í núverandi mynd!
Ho ho sei sei jú, mikil ósköp. Hann var nú ekki árennilegur í þá daga, lagsmaðurinn. En hann reyndist þó vera sómamaður í alla staði, alveg frá fyrsta innleggi. Seisei já.
Hallar sér aftur og gerir reykhringi með pípunni
Mikið óskaplega er mikið af nýjum andlitum um allan Baggalút þessa dagana, maður verður hreinlega ruglaður! Gerir eins og ruglaðir gera
Sumir eru nú gæðaskinn, það má vera ljóst, og aðrir eru líklegast gæðaskinn líka þó það sé stundum með öllu óljóst. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
En hér er þó þægilegt að koma, okkur gamlingjana þyrstir að vera þar sem lætin í ungviðinu eru ífið minni býst ég við. Svoleiðis er það víst í öllum dýrategundum og þar eru lútar líklega engin undantekning
Reyndar þá er ég gamall gestur hér á Lútnum, þrátt fyrir að ég hafi verið nokkuð hljólátur undanfarið.