Bæði er í veldisvexti
vindurinn og pestinn.
Þetta er orðinn allforn texti.
Óðar sýnir brestinn.
Kreisti mína tannkremstúpu
tæmda fyrir löngu.
Kreisti mína tannkremstúpu
tæmda fyrir löngu.
Borða núna bara súpu
svo búkur verð*að öngvu.
Aftur nú og enn á ný
enn ein bylgja hafin.
Aftur nú og enn á ný
enn ein bylgja er hafin.
Svo verður þjóðin veirufrí;
veikin dauð og grafin.
Bjarni segir sannleikann.
Svalur gaur.
Bjarni segir sannleikann;
Svalur gaur.
Gefur vinum gjarnan hann
gleymdan aur.
Lýðræðið er leiksoppur
lýðsins óvina.
Lýðræðið er leiksoppur
lýðsins óvina.
Krata hrotta harðloppur
herða ó lina.
Liprar hendur fljótir fætur
færðu þér þitt lifibrauð.
Liprar hendur fljótir fætur
færðu þér þitt lifibrauð.
Örkumla og einn nú grætur
öldungur í lífsins nauð.
Óbragðinu oft má venjast,
yfirvalda sleikjum rassa.
Óbragðinu oft má venjast,
yfirvalda sleikjum rassa.
Gegn máttarstólpum má ei frenjast.
Að mæra þá ei skaltu trassa.
Katrín á mitt bogna bak
blíðlega klappaði.
Katrín á mitt bogna bak
blíðlega klappaði.
Svo hún taði í trýnið rak,
á tærnar stappaði.
Að kyssa vöndinn kúnst er góð
þá klór fæst bak við eyra.
Að kyssa á vöndinn kúst er góð
þá klór fæst bak við eyra.
Um yfirvöldin þessi þjóð
þráir lof að heyra.
Þjóðar sinnar ljúfu lund
lofa valdsmenn okkar
Þjóðar sinnar ljúfu lund
lofa valdsmenn okkar.
Við kosningar þeir klappa um stund
á kolla, þessir sokkar.
Hlutabréfin hækka nú
í hergagnanna sjóðum.
Hlutabréfin hækka nú
í hergagnanna sjóðum.
Rússa hundum heim strax snú.
Hel þeim annars bjóðum.
Hagvaxtar aukinn hefur vikjast.
Hækka launin þá?
Hagvaxtaraukinn hefur virkjast.
Hækka launin þá?
Ef að þau núna ekki styrkjast
útifryst éta má.
Skandal ef í skúffu átt
skaltu viðra núna.
Skandal ef í skúffu átt
skaltu viðra núna.
Um syndir þínar hrópa hátt
á Her - og vitna um trúna.
'Mér er sagt að mold sé köld
og myrkrið svart'
'Mér er sagt að mold sé köld
og myrkrið svart'.
Líf þó tekur loks upp völd
við ljósið bjart.
Kemur annað kjarnastríð
við Kænugarð?
Kemur annað kjarnastríð
við Kænugarð?
Eða fæst nú framtíð blíð
með friðararð?
Ég 'var alinn upp við staur
útileiki og fimmaura hark'.
Ég 'var alinn upp við staur
útileiki og fimmaura hark'.
Ég varð seinna gleðigaur
og gleymdi mér við hjóm og slark.
Sólina má setja í gang
svo að fari klakinn.
Sólina má setja í gang
svo að fari klakinn
því ég úti um víðan vang
varfa einn og hrakinn.
Þrátt fyrir vinda og veðragný
þú virðist aldrei kveinka þér.
Þrátt fyrir vinda og veðragný
þú virðist aldrei kveinka þér.
Ég upp í storminn mér alltaf sný
og ákveðinn veginn breiða fer.
Eru launin útreiknuð
á allra besta máta.