Veiðihárin vísa leið
hjá villiköttum...
(Hef ég sent til Hollands skreið.)
... og hattíföttum.
Hattífataherðatré
hafa krók í enda,
(Hér það virðist hætt að ske
að hafa menn hér kenda).
Kenndri bók má kasta út,
kenndum manni fylgir sút,
kennsla er best á Baggalút-
i. (Bauðst þér far með Alla Rút?)
Alli Rúts á rosa safn
af reyndum gömlum bílum.
Ætli kallinn Ingi Hrafn
eigi nóg af fílum?
Fílum er víst fargað
fílabeinsins vegna.
(Á soðfiðlu er sargað.)
Þeim sauðum þarf að hegna.
Í hegningarbyggingu hafði ég dvöl.
Þar hraðasektir ég af mér sat.
(Hugsa ég núna um Krístí kvöl).
Klefa fékk ljómandi og góðan mat.
Matinn buskan ber nú fram
og bíður mér til sætis.
(Nokkrir horfa nú á Skam.)
Nýt ég þess ágætis.
Ágætis byrjun var eigi góð
áætluð skattsvik með meiru.
Veit allt það betur hún frú mín fróð
að fílarnir hafa stór eyru.
Eyrna ber ég millum mér
meira en upp fæst talið.
(Meina bara, hérna, hér,)
haldiði það sé galið?
galið hér en geggjað stuð
gaman hér að vera.
eigi má samt orða guð
eða dömu bera.
Bera af öllum Miðflokksmenn.
Mikið er Vigdísin flott.
Prýðir Ráðhús píkan senn.
(Prolarnir hafa það gott).
Gott að hafa veður vott
vætu alla daga.
Þokkadísin þykir flott
það er önnur saga.
Saga þessi sem er ljót
en sjáfsagt víða fólki kunn er.
(Hvað þýðir orðið hætishót?)
Hengdur loks var Kaltenbrunner.
Kaltenburner hver er það´?
Kannast ei við piltinn
Veit ég ekki hver er hvað
né hvað þau þýða skiltin.
Á skiltin krotar skríllinn óði:
"skattleysi", " húsnæði", "krónur og aura".
Svo kyrjar níð í kreppumóði
(Kartöfluútsæði og girðingarstaura).
Lífið hér á landi virðist, lorem ipsum,
bara svona haps og hipsum.
Hipsum- lenti -haps í vanda,
hættu þeir við samning gerðan
innan Record Records banda
(ræfill datt, nú þyrfti að herðann).
Herðann! blauðan huga þinn.
Hróp svo vakni snjallir
hróðrarvinir. Þá hópast inn...
(Hvar eru allir)?