Byggt á þekktara verki ... gæti það verið Pygmalion?
Nei og nei. Þótt ótrúlegt sé þá er nokkuð ljóst að setningin ekki að vera fyndin á neinn hátt.
Hér er ein svínslega erfið, enda myndin bæði gömul og (tel ég) lítt þekkt:
Stundum er hetjudáð það eitt að vera kona
Athugið að þó myndin sé óþekkt er hún byggð á þekktara verki.
Er þekktara verkið sem hún er byggð á eftir Sófókles?
Nei. Höfundur þekktara verksins (sem er skáldsaga) er kvenkyns. Hún var uppi á 20. öld.
Það veit þetta enginn Dinesen. Ég segi bara Pretty Woman og ekki orð um það meir! Isak las greinilega ekki upphafsinnleggið hans Enters.
Hér kemur ein í millivikt (fer fram á heiðursmannasamkomulag um að það sé bannað að beinþýða og gúgla):
Þetta byrjaði eins og hvert annað kvöld.
Greinilega er þungt í þessari millivikt pundið.