Dettum nú í djúpa lægð
dapur verður hagur.
Upp ég rís með illsku og slægð.
Aldrei er ég ragur.
Við ættum kannski aftur að skríða
inn í torfkofana.
Við ættum kannski aftur að skríða
inn í torfkofana..
Nú er úti bongo blíða,
Best að notana..
-------------------------------------
Komdu snögvast kvutti minn
kátur ert í sinni..
Komdu snöggvast kvutti minn
kátur ert í sinni..
Ég við hundahreinsun vinn
með haglabyssu minni.
Dansaðu ræl með dömunni þinni.
Djarflega ekki sveiflaðu henni.
Dansaðu ræl með konunni þinni.
djarflega ekki sveiflaðu henni.
þu verður kannski maður að minni
meikirðu betur með glyðruni ,hinni.
-------------------------------------------
Dotrmar enn við vegkanntinn
viltur ferðamaður.
Dotrmar enn við vegkantinn
viltur ferðamaður.
Sýsli þá ber blýantinn
bók að. Sýnist glaður.
Orti doktor djarfar rímur.
Dáður er hann vítt um land.
Orti doktor djarvar rímur
dáður er hann vítt um land.
Betur en gamli Skallagrímur,
gamansamur er í bland.,
---------------------------------------
Gamansamur gamall maður
gengur niður Hafnarstræti..
Gamansamur gamall maður
gengur niður Hafnarstræti.
Upp það röltir, ekki glaður,
úfinn doktor höltum fæti.
Leikur sér hinn blíði blær
í björtum lokkum.
Leikur sér hinn blíði blær
í ljósum lokkum.
Saman ganga tátur tvær
í teynóttum sokkum..
Lokka fagra milda mær
margan sveininn lokkar.
Lokka fagra milda mær
margan sveininn lokkar.
Rokkinn þenur fim og fær.
Forðast allt sem rokkar.
Franklín heitir forseti minn.
Fer ég brátt og kýs hann.
Franklín heirir forseti minn
fer ég brátt og kýs hann..
í stóru tánni fyrir finn
fæstir annars prýsann..
-----------------------------
Htt til lofts og vítt til veggja
vantar ekki pláss.
Hátt til lofts og vítt til veggja
vantar ekki pláss.
Gúnda mun ég liðið leggja.
Ljóninn er ei glugga stáss.
Gaman væri að Gúndi minn
Guðna burtu ræki.
Gaman væri ef Gúndi minn
Gunda burtu ræki,,
Þar munu .hittast stálin stinn.
stautar með öflug tæki.,
......................................
Fagrar sá ég tátur tvæt
trítla niður stræti..
´´´´´´
.,
Fagrar sá ég tátur tvæt.
tölta niður stræti.
Verður sjálfsagt ærin æt
eftir þessi læti.
Fráleitt get ég fokkað mér,
því fokku hef ég enga.
Fráleitt get ég fokkað mér
því fokku hef ég enga..
Á móti vindi bagsar ber
Björn á milli strengja,
----------------------------------
Glampar sól á gullið þil,
grös á túni spretta,
Glampar sól á gulliið þil,
grös á túni spretta.
Ég úr tánum meyru myl.
Mikið er gott að vera til.
Þú varðst ljúfur eins og lamb.
Landann þáðir glaður.
þú varst ljúfur eins og lamb..
landan þ,aðir glaður.
Mikil undur þvílíkt þamb
þunnur vastu,maður.
------------------------------
Fagurt er á fjöllum nú,
fannir sjást enn víða.
Fagurt er á fjöllum nú,
fannir sjást enn víða.
Sunnanáttinn ætlar jú
eftir sér að bíða.
Kalt er orðið austurland
engin sumarblíða.
Kalt er orðið Austurland
engin sumarblíða.
Ég kaupi mér þá bokku og bland.
Það bælir vetrarkvíða.
Það er bezt að bera sig vel
en bera grímu þétta.