Ég vann í hamingjuóskum til Grágríms. Ljómar upp
Hér með tilkynnist enn og aftur opinberlega að það er ÉG sem sigra hér!
Já, en... þú hefur aldrey sigrað þarna áður. Þú hefur alltaf sigrað á einhverjum gömlum blaðsíðum.
Hér með tilkynnist því að ofangreind staðhæfing Hvæsa stenst ekki, og dæmist því dauð og ómerk.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Styður vantrauststillöguna með báðum höndum
Leggur fram trauststillögu á yfirsigurvegaratitil súgs
Súgmúgast til andmæla
Þú leggur þetta fram þarna frammi. Vísar Hvæsa fram í skrúðshús
Það er nú varla hægt að kalla þetta hrófatildur skrúðhús.
Byggir nýtt og margfalt stærra yfirsigurvegaraskrúðhús og er þar með bæði yfirsigurvegari í þræðinum og yfirsigurvegari í stærð og glæsileika skrúðhúsa
Ljómar upp eins og yfirsigurvegararisaplútóníumljósapera
Geymir kökukrúsina inni í litla, gamla, varlaskrúðshúsinu þannig að engum detti í hug að leita þar að stolnum kökum
Passaðu að það slái ekki um þig, þú gætir forskalast.
Glottir eins og fífl
Tekur Guðna á þetta. Fær 90% sigur atkvæði. Allir hinir eru bara þriðja flokks Trump vonnabí með hor og óþægilegar skoðanir á innflytjendum , minnihlutahópum og konum.
Iss, það er ekkert að marka sunnudagsatkvæði. Kýs sjálfan súg með vönduðu mánudagsatkvæði