Merðir eru fanta fól
fjandans árans beinin..
Greni sár búa helst í hól,
holar dropinn,steininn?
Steininn tók þá alveg úr
því eftir galldembu
fylgdi harður skammaskúr
frá skassi og kvenrembu.
Kvenremba og karlafans
kát voru um jólinn,,
Saman stigu viltan dans
sveitt við bæjarhólinn,
Á bæjarhólinn helli úr
hlandkoppnum.
Sumum finnst ég kannski klúr
á kvöldsloppnum.
Kvöldsloppinn vefur Bjarni un belginn
Bjarni er maður ,mikill og sver.
Tautar og tuðar,veðurr sno elginn
tæpur á geði,karlanginn er.
Er á vappi vill fá klapp
visku knappi Lappi.
Létt frá stappi löngum slapp
lúmskur happa tappi.
Tappanum .i flösku treð
tilað mynda svona,
Sðan ófært vaðið veð
væblast áfram svona.
Svona eins og aumingi,
ertu Lappatetur
Enginn maður umsyngi,
að þú nokkuð getur.
Og þegiðu svo.
Getur lappaljóðin sín
ljúflega sungið Upprifinn
Segir: Mín er söngrödd fín.
Af sjálfum sér er hann stórhrifinn.
Stórhrifinn með bansett bull
bægslast áfram núna..
Til að mynda glópa gull
glampar í augum núna..
Núna skín hér sumarsól
sóttin fer í dvala,
Heyrist núna hundagól
og hanar núna gala.
Gala hanar gamlir ekki
gjamma hundar ei..
Smala kettir ´fé í kekki,,
kúrnar maula hei.,
Hei! ég góða fræðslu fékk
af frægum ljóðá kappa,
er settist ég á Braga bekk
hjá beztum doktor lappa.
Beinið nagar hundur hér
heyrist glamur tanna,
Pirrast ef hann póstinn sér
póstinn vill hann banna.
Banna ætti hunda hald,
hænsn og ketti líka.
Kindur, brækur, visku vald,
og væu kjóa slíka..
Slíka góða og gegna menn
og Gúnda vil ég styðja.
Bessastaði situr senn.
Sá mun gott margt iðja.
Iðinner við störvin sín,
Sgurður bóndinn prúði.
Margir af honu gera grín
greyið er svoddan,lóði.