Það tilkynnist hér með opinberlega að ég sakna ykkar flestra, þó ekki allra
Það tilkynninst hér með opinberlega að hvort sem Kargur saknar mín eða ekki þá hef ég saknað hans.
Það tilkynnist hér með opinberlega að það virðist vera einhver mikilvægur knattleikur í dag í raunheimum.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er rykfallinn.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég býð Galdra hjartanlega velkominn heim.
Þó hann sé bölvaður tuðari, röflari, fylliraftur, dóni...Starir þegjandi út í loftið
Stopparu nokkuð mjög lengi gamli ?
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég býð Galdra hjartanlega velkominn heim.
Þó hann sé bölvaður tuðari, röflari, fylliraftur, dóni...Starir þegjandi út í loftið
Stopparu nokkuð mjög lengi gamli ?
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Elsku vinur, þetta eigum við jú sameiginlegt.
Ljómar upp
Það tilkynnist hér með opinberlega að það er opið í sundlaug Ýsufjarðar milli klukkna 16:00 og 22:30 alla virka daga og milli klukkan 14:00 og 19:00 á laugardögum.
Það tilkynnist hér með opinberlega að Vladimir virðist hafa komið veðurvélinni í gang.
Hinsvegar hefur hann ekki sést hér í nokkra daga svo ég held að hann hafi komið tímavélinni í gang líka og sé á flakki einhverntímann og jafnvel fastur einhverntímann.
Því nota ég tækifærið og tilkynni opinberlega að ég er sigurvegari í öðrum þræði.
Það tilkynnist hér með opinberlega að þessari opinberu tilkynningu er ætlað að tilkynna það opinberlega að engar opinberar tilkynningar eru tilkynntar opinberlega í dag.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að undanfarandi tilkynning var oss að nokkru leyti gleðiefni; hefðum vjer þó kosið að orðið örugglega væri notað í stað orðsins sennilega.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er þess nokkuð viss um að Kargur og Vlad séu báðir Glúmur.
Það tilkynnist hér með opinberlega að það virðist einhverra hluta vegna vera að lifna yfir Baggalútíu, er hugsanlega stórtylft* magurra ára** að ljúka?
* Baggalútízk stórtylft: 13
** no. Ári: púki, drýsiltrítill, djöfulllingur, skrattapungur, skaðálfur
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er mættur!
Það tilkynnist hér með að ég ætla að skrifa innlegg eða tvö í kveld.