Virðir veðrið vettugi og vinnur vel
Byggir lítinn og krúttlegan skúr fyrir verðlaunagripi Vlads og byggir síðan risastóra skemmu með plútóníumlýsingu fyrir sitt risastóra yfirsigurvegaraverðlaunagripasafn
Hrökklast afturábak og hrasar við
Byggir verðlauna(gripa)höll sem er miklu stærri en skemma Hvæsa og nær með naumindum að koma þar fyrir risastóru yfirsigurvegaraverðlaunagripasafni sínu (sem þarf enga sjerstaka lýsingu því margir verðlaunagripanna eru sjálflýsandi)
Ég skal sjá um sigrana á meðan þið standið í öllum þessum byggingarframkvæmdum.
Hafnar öllum beiðnum um breytingar á samþykktri byggingaáætlun til næstu 20 ára
Hafnar öllum beiðnum um breytingar á samþykktri byggingaáætlun til næstu 20 ára
Það líst oss afar vel á því byggingin utan um verðlaunagripi vora er akkúrat núna miklu stærri en samsvarandi bygging Hvæsa og þessi höfnun þýðir að Hvæsi má núna hvorki stækka sína byggingu nje byggja nýja og stærri Ljómar upp.
Hafnar öllum beiðnum um breytingar á samþykktri byggingaáætlun til næstu 20 ára
Það líst oss afar vel á því byggingin utan um verðlaunagripi vora er akkúrat núna miklu stærri en samsvarandi bygging Hvæsa og þessi höfnun þýðir að Hvæsi má núna hvorki stækka sína byggingu nje byggja nýja og stærri Ljómar upp.
Stelst í tímavél Vlads og færir tímann til ársins 2040
Þessi 20 ár voru ekki lengi að líða Glottir eins og fífl
Hefst handa við hönnun og smíði byggingar sem er miklu-miklu stærri en kofinn sem Vlad var að klambra saman
Veistu ekki að öll plánetan er friðuð, núna árið 2040?
Rífur alla kofana og sigrar sjálfur
Finnst krúttlegt að Billi haldi að það verði einhver pláneta eftir til að friða árið 2040...
Það er bara til dauðastjarna í Stjörnu stríði. Við verðum ekki gleypt af sólinni fyrr en eftir mína tíð.
Planleggur tíðahvörf
Finnst krúttlegt að Billi haldi að það verði einhver pláneta eftir til að friða árið 2040...
Það verður komin ný pláneta í kringum 2040. Þá getum við byrjað uppá nýtt og ruslað til eins og enginn sé morgundagurinn. Þér er velkomið að mæta, þeas ef þú nærð rútunni.Grípur um kvið sér, leitar að einhverju til að tromma á svona durum tss, finnur ekkert og leggst þá í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Það verður sko engin helvítis rúta... það verður langferðabíll!
Það verður sko enginn helvítis sigur. Það verður YFIRSIGUR!
Þið krútt og lúsablesar getið bara farið heim.
Já og sá næsti til að tjá sig hér er algjört krútt.
Hrökklast afturábak og hrasar við en tjáir sig ekkert
Þetta hér er yfirsigurvegarakrútttjáning ársins!
Nei!-ið þitt kom, því miður aðeins of seint. Andmælaréttur var rétt svo runninn út þegar þú náðir því inn.
Við byðjumst auðmjúklegrar afsökunar á því.
Áfrýjunarfrestur er í nokkra stund í viðbót, og eingöngu Vlad getur tekið kvörtun þína til greina.
Svona eru bara lögin. Því miður er ekkert annað sem ég get gert.
Gefur Hvæsa pestókrukku í sárabætur
Hendir rennblautri vantrauststillögu í þessa vitleysu frá Billa
Ég heimta að þessi ummæli verði dæmd dauð og ómerk, því að á þessum þræði er ÉG hinn eini sanni YFIR sigurvegari!
Vegna formgalla á innleggi Billa hjer ofar erum það einungis vjer sem getum talist yfirsigurvegari hjer.
Ert þú sem sagt með yfirsigurvegarakrútttjáningu ársins, Vlad?