Leitar að þeim hópi óvina ríkisins sem rændi Hvæsa
Ég held að hann hafi farið í ByBa að sækja efni í nýjan yfirsigurvegaraskáp.
Hrökklast afturábak og hrasar við
Fer líka í ByBa og fær sjer líka efni í yfirsigurvegaraskáp og stækkar hann svo til öryggis örlítið þannig að hann verði örugglega örlítið stærri en skápur Hvæsa færi svo að Hvæsi birtast á ný
Já, gjörðu svo vel... hér er einmitt fínasta efni í pappaskápa sem standast næstum því allar blautar þyrluframkvæmdir. Afgreiðir fullt af efni á ótrúlega hagstæðu verði...
... fyrir ByBa
Vjer erum marsmánaðaryfirsigurvegari Ljómar upp eins og plútóníumljósapera.
Uss, það er ekki einu sinni liðin vika af mars. Massar mars
Það er bara alrangt að það sje ekki liðin vika af mars; er því enn augljósara en ella að vjer erum marsmánaðaryfirsigurvegari hjer Ljómar upp.
Hann er nú varla hálfnaður. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Þá höfum vjer bara enn fleiri tækifæri til að verða enn margfaldari marsmánaðaryfirsigurvegari en ella Ljómar upp.
Ég er víst einn um að hjálpa þér við það...
Hjálpar og hjálpar og hjálpar...
Það lítur út fyrir það Setur óvini ríkisins á listann ógurlega yfir óvini ríkisins fyrir að ræna Hvæsa.
Ertu að ýja að þvi að Hvæsi hafi rænt sjálfum súg? Klórar súg undurfurðulega í höfuðpaurnum
Hrökklast afturábak og hrasar við
Nei, alls ekki. Hvernig fáið þjer það út?
Klórar sjer í höfðinu
Er hann ekki óvinur ríkisins fyrir að stela alltaf sigrinum hér, og svo settirðu hann á listann fyrir að ræna sjálfum súg? Glottir eins og fífl
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vandlegri skoðun á listanum yfir óvini ríkisins er núna loksins lokið. Hvæsi er eigi á þeim lista. Teljum vjer því óhugsandi að hann hafi rænt sjálfum sjer.
Ég held að hann hafi komist í listann fyrir skoðun og dulbúið nafnið sitt.
Starir þegjandi út í loftið
Nei, öryggisgæsla kringum listann útilokar slíkt.
Eins og lítil virkni þessar þráðar sýnir erum vjer að sjálfsögðu nú sem endranær margfaldlega viðurkenndur margfaldur yfirburðayfirsigurvegari hjer Ljómar upp í fagurbláum bjarma frá fjölda plútóníumhúðaðra verðlaunagripa fyrir óteljandi sigra hjer.
(samt verður að viðurkennast að vjer söknum Hvæsa dálítið og tilheyrandi misheppnuðum tilraunum til að ræna oss sigrinum)