Ælupest og vindgangur vondur
væblast í kalsins belg.
þvílíkur skammar skondur
þvælist og veður elg..
Elgsbeyjuna ekki tek
oltið bíllinn getur.
Gjarnan þá í gírinn rek
og gef í tölvert betur.
Betur gengur nánið næst,
Nonni kann að lesa.
Bókin kláruð,losins læst
logsin gefin Dresa..,
Drési elskar Sínu sína
í sögum Disneys blaða
Alltaf getur öndin fína
alla hér gert glaða.
Gleði stundir margar mann,
mikið af gömlum sögum.,
vísnabálka karlinn kann
og kvæði frá gömlu dögum..[/i]
Dagar lengjast lekur snjór
líður senn að vori
Dunda við að drekka bjór
dey ég ei úr hori.
Hor úr nefi lLka lekur
langt og mjótt,
mikið við sá ræfill rekur
rauða framm á nótt ,[/i]
Nætur styttast dimman deyr
dagar taka völdin.
Sólin skín nú meir og meir
menn þá sækja tjöldin.
Tjöldin fuku langa leið
Lákii svaf í einu..
Eftir honum Bína beið
brosandi með kleinu.
Kleinur snúðar bakað brauð
bakkelsið er mikið.
Veislukaffi konan bauð.
kom þá á mig spikið.
Spikið étur gamli Gvendur
góblar það í sig.
Er með stórarv hraustar hendur
horfðu á sjálvan þig:.
Þig í gegnum ýmsir yrkja
þá ertu á slarki
Þeir krefjast launa, lána og styrkja
í lífsins harki.
Harki miklu lenti Loki
lalandi heiða til,
í hamlausu veðri og rosa roki
rennblautur,og finnur til.
Til og frá þú ferð og kemur
ferðalagið endar hér.
Ljóðin hérna sem þú semur
syngja oft í huga mér.
Mér er oðið þörf á því
þegar hallar degi..
Mælti gamli Stebbi strí´
sopan þarfnast eigi.
Eigi hann sitt eina skjól
undir limi bjarka
eymdarleg þá ymja gól
er hann fer að harka.
Harkae af sér gamli Gráni
gæða klárinn minn..
Vorð nálgast, held að hláni
heiðurs vinurinn...
Vinur minn á voða bágt
voðalega þreyttur.
Reisnin farin risið lágt
rosalega sveittur,