Óllsen bræður búa á
baunalandi flötu
Hér við segjum hí á þá
sem hafa ekki götu.
Götu breiða lallar Lalli
lotinn herðum í.
þessi gufu trjónu tralli
takið eftr því.
Þvílík gleði þvílíkt fjör
þorrablót oft eru.
Fáum við þá mikinn mör
í maga okkar sveru.
Sveru járni böglar Björn
betur máti ei fara.
ákaft á því tekur törn
tannhjól bjó hann bara...
Baraflokkinn fílaði
fyrir hundrað árum
Þá með dópið dílaði
og dúskur minn hélt hárum.
Hárið farið burtu brott
ber er skallnn núna,.
Mér ei sjálfum finnst það flott,
fel og missi trúna.
Trú er orðin úrelt nú
á Íslandinu ljóta.
Eitt sinn var hér ásatrú
áður máttu blóta
Blóta helling margir menn
mölva brjóta og tína..
Áður man ég tíma tvenn
tautaði hún Lína.,
Línu oft ég yfir fór
yfir mjóa strikið
Þegar ég drakk bús og bjór
bölvaði ég mikið.
Mikið bölvar Offi bjór,
bölvið varð of mikið,
þóttist ver þróttar stór
þar fór hann yfir strikið.
Strikið gekk í gamla daga.
Gaman fannst mér þá.
Alltaf var ég utan laga,
ef enginn til mín sá.
Sá er yrkir vonda vísu
vælukjói þver..
,Klaufabárður,yljar krýsu
kantu að svara mér.
Mér oft blöskrar bullið hér
þó bætist á mig spikið.
Veit að ég er þrjóskur þver
og þusa voða mikið.
Mikið Offi þusar oft,
oss .það ekki blöskrar,
Nú úr búknum lekur loft,
líka kýrin öskrar..
Öskra mættu allir hér
yfir ráðamönnum.
Stofna ættum okkar her
eða gera könnun?
Könnun þarf að gera gagn,
gaman yrðin fjúka.
heljarinnar mikið magn,
maga úr karlsins rjúka..
Reykjavíkurráðamenn
rugla tóma þvælu.
Í dolluna mun Dagur senn
drulla tómri ælu.