Skol ? Eða skál !?
Skál!
Drekkur Coca Cola
Vekur þráðinn
Það er alltaf gaman að heilsa upp á gamla kunningja
Íhugar alvarlega að fela dagbókina sína hér en hættir við
Bölvar hástöfum yfir að missa af enn einu tækifærinu til að komast yfir dagbók sjálfs Glúms
Æ, hún er nú skelfing ómerkileg. Hún er meira að segja bara einblöðungur eins og er og ekki áhugaverð aflesturs, en kannski get ég bætt við hana í framtíðinni.
Hingað er alltof langt síðan vjer höfum komið. Skál, þjer laumupúkar ! Ljómar upp í nostalgíu
Æ, hún er nú skelfing ómerkileg. Hún er meira að segja bara einblöðungur eins og er og ekki áhugaverð aflesturs, en kannski get ég bætt við hana í framtíðinni.
Kannski ertu þegar búinn að bæta við hana í framtíðinni.
Svo... seinna meir, þá skulum við gera þenna þráð að laumupúkaþræði! Hlær ójarðlega, dregur annað augað í pung og drepur tittlinga með hinu
Slíkt lízt oss afar vel á, og munum sannlega þátt taka.
------Upphaflegt innlegg endar------
Vladimir
Í dag ætluðum vér einmitt að svara eins og seinast. Bœtum vér hér með um betur og laumum í alvöru nýju inn. (1.2.2011)
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer fögnum mjög þessari fyrstu viðbót við þennan laumupúkaþráð í háa herrans tíð. Þó er sá galli að líklega er þetta laumupúkainnlegg yðar hið eina þar sem 'linkurinn' efst á þessari síðu virkar því allt slíkt eyðilagðist við umbyltingu Gestapósins fyrir fáeinum árum (haustið 2007 minnir oss). Skál !
(02.02.2011 12:18)
Hér með tilkynnist opinberlega, að grunur yðar reyndist réttur. Innlegg okkarra eru þau einu, er varðveittst hafa, eftir umskakkann mikla haustið 2006. (Því það var 2006, en eigi 2007.) (2.2.2011 23:53)
Ef þér skylduð einhvern tíma finna þetta, Vladimir, nú eður jafnvel einhvur annar, þá teljum vér líklegt, að vér færum oss annað, enda sjáum vér nú hversu illa innlegg vort er staðsett, aftast á sínum þræði. Vér bœtum þá við tengli, er vér finnum betri stað. (19.12.2011 01:10)
Það tilkynnist hjer með (ó)opinberlega að eigi er stutt síðan hjer hefur verið laumupúkast. Skál ! Sýpur á fagurbláum jólavetrarsólstöðudrykk
Ég get ekki laumupúkast hér.
En kannski get ég það seinna. Ljómar upp
Skál!
Zhcá*hick*l