Fyrri ár eru miklum mun umsvifameiri, og þar er ég yfir og aðal og allt um kring.
Þegar 2019 verður orðið stærra en það, þá geturðu fengið að njóta þín smá.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Nei!
Farðu nú að þrífa klósettin á langa ganginum.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Nei!
Voðaleg neikvæðni er þetta í þér alla dag. Ertu kominn með mótþróaþrjóskuröskun?
Nei!
Jú! Víst! Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Nei þú!
En ég er með 9 barnaskólagráður!!!
Laumupúkast
Fann þig.
Ég var ekki einu sinni týndur.
Hvar í ósköpunum varstu?
Það er víst ekki alltaf sem sá týndi veit að hann er týndur.
Ef maður veit það sjálfur er maður villtur... ef aðrir vita það er maður týndur.
Þú ert villtur ef þú veist hvert þú vilt komast, en ratar ekki.
Ef þú veist ekki einu sinni hvert þú vilt komast, þá ertu alveg týndur.
Vjer þurfum ei að vita hvert vjer viljum komast því vjer erum þar nú þegar: Í yfirsigurvegarahásæti þessar þráðar Ljómar upp.
Og ekki í fyrsta sinn…
… en kannski í það síðasta. Læsir þræðinum