Þetta er auma bölvað bullið,
björt er sólar glætan.
Spilar með mann glópagullið
og gerir mig ei sætan.
Senn mun ljúka sumri hér
sól á himni lækkar.
Senn mun ljúka sumri hér
sól á himni lækkar.
Upp til heiða fenna fer
og fjárhópurinn stækkar.
------------------------------------
Í réttunum nú blaðra bændur,
blykar enn við sólarlag.
Í réttunum nú blaðra bændur.
blykar enn við sólarlag
Þar var ég um vitglöp vændur
i vondslegum leirbornum brag.
Heilagsanda hoppari
hef ég verið kallaður.
Heilagsanda hoppari
hef ég verið kallaður.
Gamall sktjarfur stoppari,
staurfullur og mallaður.
-----------------------------------------
Gunna ,úti gengur
Grímsi horvir á.
Gunna ,úti gengur
Grímsi horvir á
Góður greindur drengur
Gunnarsstöðum frá.
Skrifaðu mér skilaboð
en skammaðu mig ekki.
Skrifaðu mér skilaboð
en skammaðu mig ekki
Út í hlöðu á mikið moð,
marga fulla sekki.
----------------------------
Næsta verður hnoð á hnoð,
hroði og árans bull.
Næsta verður hnoð á hnoð,
hroði og árans bull.
Hlustum ei á bönn og boð
búum hér til gull,
Stjórnar núna Kata káta
krónan okkar fellur hratt.
Stjórnar núna Kata káta
krónan okkar fellur hratt.
Kolvitlaus í Danska dáta
dæmalaust, en hreina satt:
---------------------------------
Tunnan orðin fleyti full
flýtur, út af,hreina satt.
Tunnan orðin fleyti full
flýtur, út af,hreina satt.
Úr keytu þværðu þína ull.,
þínar hendur, eyru og hatt.
Forysta hans skipti sköpum.
Skýrslan sýnir það.
Forysta hanns skypti sköpum
skýrslan sýnir það..
Kominn er út af öskur öpum,
örþunt sýnir blað.
-------------------------------
Ullumbjakk á fótinn fór
Fúsi þurfti strags í bað.
Ullumbjakk á fótinn fór
Fúsi þurfti strags í bað.
Hvorki dugði droll né slór,
Drottinn Jésúm sá um það.
Enginn hefur áður séð
aðra slíka skýrslu.
Enginn hafði áður séð
aðra slíka skýrslu,
sem sýndi djörfum dæmum með
Davíðs góðu stýrslu.
Kreppan skæð mun koma brátt
þá kænan vantar Davíðs jafna.
Kreppan skæð mu koma brátt
þá kænan vantar Davíð jafna.
Út við hafsrönd blikar blátt,
og björgun hann mun safna.
--------------------------------------
Nú er kátt í kotinu
Kata stjórnar öllu.
Nú er kátt í kotinu
Kata stjórnar öllu.
Stendur efst í slotinu
og starir frá um völlu.
Hefur þú það háttalag
að hætta snemma í kaffi?
Hefur þú það háttarlag
að hætta snemma í kaffi?
Ætla að hitta Dóra í dag,
drekkum te í straffi.
--------------------------------
Dæmalaus er gamla Grána,
geltir eins og hundur.
Dæmalaus er gamla grána
geltir eins og hundur.
Hundarnir .þeir horfa' á ána.
Hún þeim þykir undur.
Það er maður með hörgult hár
sem heiminn bæta vill.
Það er maður með hörgult hár
sem heiminn bæta vill.
Svo ey fleiri sægræn tár
safnist á verkin ill.
Þú keyptir þér far en komst þó samt
að kláruðu verkinu.
Þú keyptir þér far en komst þó samt
að kláruðu verkinu.
Gömlu Tótu er það tamt
að tuða út í merkinu.
-----------------------------------------
Upp til fjalla heldur hratt
hlunkast skakki Gvendur.