Þokudrungi súldar sút
svona er veðrið núna.
Svo ég fer til Englands út.
Ætla mig að brúna.
Sturla hún var heiðursmaður.
Hylli naut hjá konum.
Sturla hún var heiðursmaður.
Hylli naut hjá konum.
Og Sigríður, hann sjaldan blaður
sagði hér, að vonum.
Ætti mannanafnanefnd
að neita öllum beiðnum?
Ætli mannanafnanefnd
að neita öllum beiðnum.
það yrði öllum hæðnis hefnd,
heldur betur seiðnum
-----------------------------------------
Gerðu vinur bragar bót
betri meður vísu.
Gerðu vinur bragar bót
betri meður vísu.
Verði hjá þér vísan ljót
er vont að ná í skvísu
Fótboltinn er farinn nú
fínni dagskrá kemur.
Fótboltinn er farinn nú
fínni dagskrá kemur
Í henni finn ei heila brú
Hún mig fúlan gremur.
Fyrirlestur flutti hann
um fréttir lognar.
Fyrirlestur flutti hann
um fréttir lognar.
Út í móa bálið brann,
bóndinn tognar,
--------------------------
Æði mjög á Rúnka rann
Ranka,heima bíður.
Æði mjög á Rúnka rann
Ranka,heima bíður.
Sólin skein svo bakið brann
mér böllvanlega svíður.
Um helgina ég fer á flakk
með flöskuna í hendi,
Um helgina ég fer á flakk
með flöskuna í hendi.
Á bindindinu brátt ég sprakk.
Það bágindunum kenndi.
Nú er að byrja niðurgangur.
Naprir vindar gnauða brátt
Nú er að byrja niðurgangur
naprir vindar gnauða brátt.
Enn er gamli Sveinki svangur,
svið og trosið ,etur hrátt.
-------------------------------------
Ennþá gnauðar vestan vindur
vætutíð með skítkasti.
Ennþá gnauðar vestan vindur
vætutíð með skítkasti
Niður heyið Bjössi bindur.
Bóndans þegn, sá nýtasti.
Ég komst í kast við lögin.
Kardó ég í búðum stal.
Ég komst í kast við lögin.
Kardó ég í búðum stal.
Nú syngur hjá mér sögin,
senn ég sleppa héðan skal.
Sumarið víst settist að
á suðurhveli jarðar.
Sumarið víst settist að
á suðurkveli jarðar.
Sumarliði tyggur tað,
Tóta gamla blaðrar.
---------------------------------
Ákaft gaular görnin,
gaman er að því
Ákaft gaular görnin,
gaman er að því
Vinnutímatörnin
tekur svoldið í.
Vætutíðin enn er á
austurlandi núna.
[i
[/i]
Vætutíðin enn er á
austrlandi núna..
Bændur þurfa eflaust þá
þrengja sé uppá frúna..
-----------------------------
Til fjalla enn þumbast þokan
þreitan sækir að.
Til fjalla enn þumbast þokan
þreitan sækir að.
prestinum með pokann
sem paufast heim að Stað.
Rottueitrið ekki fann.
Ergði hann það mikið
Rottueitrið ekki fann.
ergði hann það mikið..
Innra fyrir bálið brann
Björn fór yfir strikið
------------------------------- ,
Nú er blssuð sumar sól
sjest tl fjalls í noðri.
Nú er blessuð sumar sól
sjest til fjalla í norðri,
sagði Rúnki róni og fól
í ræðu skorinorðri.
Núna ekki sést til sólar
samt er hann þurr.
Núna ekki sést til sólar
samt er hann þurr.
Bullustrokkur rokkar rólar,
en Runki seendur kjurr..
-----------------------------------
Þetta er auma bölvað bullið,
björt er sólar glætan.