Vísa dagsins vísast er
vísitölu háð.
Ýsa dagsins ísast hér
upp á hagsins náð.
Situr áfram séra Jón
með samviskuna klára.
Ekkert sér hann Íslands tjón
er upp hann magnar dára.
Upp á bita fjóssins flón
fitu safnar tára
sinnar þjóðar, sinnir bón
sundurlyndisfjára.
Kvíabryggju kvöddu fól.
en koma aftur senn.
Þó sér eigi aflandsskjól,
ökklabandamenn.
Kominn er sumars blessuð blíða
bændur allir gleðjast nú.
Höndla, glaðir væblast víða
vaknar þrá með helgri trú.
Á fæðingardegi forsetans
ég færi honum ástarkveðju guðs og mína.
Ég mæri hátt styrka stjórnun hans.
Störfin hans sem geislar sólar á oss skína.
Heyrir fólk minn harmagrát.
Hvað því getur valdið?:
Guðni Davíð gerði mát.
Get ei vatni haldið.
Sigmundur hann sigur vann.
Samfögnum vér honum.
Á Íslendingum hefur hann
hjartað fyllt af vonum.
Framsókn hefir í hundrað ár
hag eflt lands og þjóðar.
Henni fylgja heillaspár.
Henni sendi kveðjur góðar.
"Allt mitt líf var eilíf leit
eftir" Jesú Kristi,
"en ég er eins og alþjóð veit
aðeins" hedonisti.
Nú kominn er að kveldi
kleinuhringja dagur.
Ég hátíðlegan héldi
hann, ef væri magur.
Úr Framsókn Sigmundi fylgi ég
fremsta manni okkar samtíðar
Hann gerir þjóðinni góðan veg,
sem gengur hún til sinnar framtíðar.
Sér hann bara sig-mundur,
sér hann reið á slig-mundur,
sér nú vel um sig-mundur,
sér brátt annað stig-mundur.
Þaut hann fram á þýðum jó
þegar flokknum gat hann splundrað.
Pottþétt fær í pissuskó
prósent vel á annað hundrað.
Mætti á Miðflokks fund.
Mælti þar Sigmundur.
Gladdi það geð og lund.
Góð var sú stund.
Simmi er með x- m gott.
X-m hans mun smita þjóð.
Þá verður hennar framtíð flott.
Fólkið hreppir kjörin góð.
Greddu' eg ekki góða tel
af girnd er illt að brenna,
en gott er að vera geltur vel
og getulaus til kvenna.
Sauðfjárvandann víst skal laga strax
því virðiskeðjan má nú ekki rofna;
en fátæktin, hún bíður betri dags,
og best er geymd í nefnd sem fær að sofna.
Bls. 18:
"Eitt af fyrstu verkefnum
ríkisstjórnarinnar verður að bregðast við vanda sauðfjárbænda
til skemmri og lengri tíma."
Bls. 29:
"Gerð verður úttekt á kjörum
tekjulægstu hópanna í íslensku samfélagi, tillögur til úrbóta
settar fram og þeim fylgt eftir. Sérstaklega þarf að huga að
stöðu barna sem búa við fátækt en þau eru einn af
viðkvæmustu hópum samfélagsins."
Hver blandar saman sykri og mjólk?
Samsalan í Reykjavík.
Drullumixið drepur fólk.
Djöfull illur frá mér vík !