Laga skaltu landa nú
og leggjast svo í bleiti.
Rétt er svo að reisa snú-
ru á næsta leiti.
Leit ég við á kaffikrá
kaupti mér einn ölla.
Brá mér svo að borða smá
bát kendan við Hlölla.
Hlölli seldi Heinrich Böll.
Heinrich kvaðst þó eiga Böll.
Þá ansaði Hlölli: „Heinrich Böll!
Hlölla Böll ég fyrir slikk
venör, býð þér. — Viltu Dick?“
Dicktafónninn telur takt
tónverk þurfa hjarta
Taktlaust verkið verður svagt
vinirnir þá kvarta.
Kvartbuxur úr Karnabæ
ég kaupi æ.
Á ballmiðin svo bjartur ræ
og barna fæ.
Fæ ég góða gjöf í ár?
gefur hún mér bíó?
Eða kannski tónatár
frá tríó kent við Ríó?
Ríó Duran Duran söng
en Duranona skaut í stöng.
Til guðs er jafnan gatan þröng
og glepjist þú, hún verður löng.
Lagt er vart til vorsins nú
veturinn mun hopa.
Þegar vorar fær mín frú
fínan kaffisopa.
Kaffisopa komst ég í
og korginn bruddi.
Eitur það nú fer í frí,
sá fjandans ruddi.
Ruddalegur róni ert
ræfislegur auli.
Viðbjóður með vitið skert
og væl þitt líkist gauli.
Gauli ég sem gaulverji
þá gæti bara hent
að Ástríkur mig á herji
og í mér þaggi pent.
Pent menn orða ástandið
þó allt sé hér í köku.
Hér við virkjum hálandið
og hendum svo inn stöku.
Stöku- hef ég -staðinn sótt
og stært mig þarf af vísum
sem að ég þar yrki ótt
og aldrey lendi í krísum.
Krísuvíkurvegargjald
verður eflaust síðar.
Okkar kæra yfirvald
okrar þar og víðar.
Víðar bugsur en brókinn þröng,
blikar sól á heiði.
Ljúfan ég heiri svana söng,
silung fer og veiði. ( þetta er nú meira bullið.=)
Veiði fleyg úr vasa mínum,
vísur kveð og rappa.
Drekk svo vín úr fleygnum fínum.
Fagna komu lappa.
Lappi eftir langa bið
lætur í sér heyra.
Gott það er en gætuð þið
gert af þessu meira.
Meiri sykur, meira grín,
meiri pening elskan mín.
Meira tóbak, meira vín,
meira spítt og heróín.