Varla er ég virtur svars
ef vitringana spyr.
Þú gleymdir að í kaupið kvars
þeir krefjast enn sem fyr.
Það er ljótt að lýsa á þann
sem laumast skuggum í.
Það er ljótt að lýsa á þann
sem laumast skuggum í.
Við því ætt´að vera bann
vera bara afþví.
Snjórinn safnast saman hér
sekkur allt á kaf.
Snjórinn safnast saman hér
sekkur allt á kaf.
Þú ættir nú að opna hver
svo út hann renni á haf.
Offari nú aftur snýr,
ekki þó sem draugur.
Offari nú aftur snýr,
ekki þó sem draugur.
Ég er ennþá skepna skír
en skrokkurinn er haugur.
Reynda hér inn ruddist til
að rifj´upp gamla takta.
Reynda hér inn ruddist til
að rifj´upp gamla takta.
Komstu þá með kerti og spil
og kúplingu upprakta?
Vegi hérna varast ber,
þeir vondir eru og slitnir.
Vegi hérna varast ber,
þeir vondir eru og slitnir.
Þraut að keyra þetta sker
þótt menn séu hittnir.
Vetur eigi hættir hér
hríðar alla daga
Vetur eigi hættir hér
hríðar alla daga.
Gönguskíðin gefðu þér,
þau gjarnan færið laga.
Töltum öll til Teneríf
og trimmum þar til vorsins.
Töltum öll til Teneríf
og trimmum þar til vorsins.
Fólkið vildi fenalíf
fyrir tíma morsins.
Stafasúpupsultugraut
sumir nú að elda.
Stafasúpupsultugraut
sumir nú að elda.
Oná honum epli flaut,
ég óðar vil hér melda.
Borgarstjórn hér bráðum fæst
sem brýtur af sér hlekki.
Borgarstjórn hér bráðum fæst
sem brýtur af sér hlekki.
Sá sem fær þá fylgið stærst
finnur aðra hrekki.
Vegakerrfið orðið er
ömurlega bilað.
Vegakerrfið orðið er
ömurlega bilað.
Út á mið því flotinn fer,
en fæst þá ekki skilað.
Í holuviðgerð hæfa menn
er helst að fá
Í holuviðgerð hæfa menn
er helst að fá
Nú sem fyrr og aftur enn
augun sjá.
Skúffukaka kaffi tár
koman nú mér býður.
Skúffukaka kaffi tár
koman nú mér býður.
Ég verð alveg ofsa sár
ef hún kaffið sýður.
Jökull bráðnar, bunga rýs,
svo brýst út vítiseldur.
Jökull bráðnar, bunga rýs,
svo brýst út vítiseldur.
Svartur himinn eldur ís
Arion var seldur.
Endalokin óttast menn
allt sinn tíma hefur.
Endalokin óttast menn
allt sinn tíma hefur.
Formennirnir fara senn
á fætur, ef að gefur.
Ef ég blanda upp til hálfs
eðalrjóma og sykri.
Ef ég blanda upp til hálfs
eðalrjóma og sykri.
Hefur þú séi íbúð álfs
úr ofurhertum vikri.
Aflífaðar ærnar nú
eftir vetrardvala.
Aflífaðar ærnar nú
eftir vetrardvala.
Sauðakjöt nú sýður frú
og setur loks í bala.
Frekar en að fóðra það
féð er best að skjóta.
Frekar en að fóðra það
féð er best að skjóta.
Til þess langar oft mig að
er ærnar mínar hrjóta.
Hitabylgjar byrjuð er
bráðnaallar fannir.