Fann ekkert sem rímar við "gripið".
Guðmundur hann stundi "Stopp!
Stend ekki í'essu lengur"
Var þinn ferill bara flopp?
Fallinn ertu drengur.
Bolta kastað beina leið.
bara að þeir gætu gripið.
markið bak við miðju beið
mátulega yfir skipið
Leggur hendur í skaut
Bolta kastað beina leið
bara að þeir gætu gripið
lagast eftir ljúfa reið
létt í brjóst fá klipið
Bolta kastað beina leið.
bara að þeir gætu gripið.
Í vörn og sókn ég bara beið
bölvað aula fipið
Alfreð viljum aftur heim
árangri svo náum.
Er þetta fullgildur og réttkveðinn fyrripartur?
Jamm.
Alfreð viljum aftur heim
árangri svo náum.
Þorsteinsson í þessum geim
þykir likjast fáum.
Patti, Fúsi og Óli Stef
Landsliðsmenn í fríi
Hjá HSÍ verður næsta skref
Landsliðið í fríi
Ég hlýt að getað bögglast í gegnum þennan kveðskap
klórar sér í höfðinu Roðnar og flissar eins og smástelpa
Þetta er allskostar óstuðlað en ágætt samt.
, Fáum er til lista lagt
leggja orð í belg,
gaman er að geta sagt
gæfan er mér helg.
Halldór Blöndal hefur sett
hellings fundi á þingi,
Bíður svo í berjalyngi
baggalútur eftir frétt.
Sauðsleg vörnin setur met,
sóknar- horfinn -þunginn.
Veiðist boltinn vel í net,
virðist blaðran sprungin.
Handboltanum hendi ég
upp í hæðstu rjáfur
sigurskotið sendi ég,
sýnist markið háfur.
ekki er sókin amaleg,
ef að virkast gáfur.
lítið verður leiðin treg
lyftist sigurkláfur.
Gegnum vörn ég grýti hart
geigar skotið ekki
Gegnum vörn ég grýti hart
geigar skotið ekki
Fer á alveg feikna fart
með sinadrátt og verki
Gegnum vörn ég grýti hart
geigar skotið ekki
Fer á alveg feikna fart
með sinadrátt og verki
Innundir pils áranum
unaðurinn bíður
fékk ég ekki úr fjáranum
fjandi hvað mig svíður