Ætti maður að þora að spyrja einhvern að því?
Veit nokkur neitt hvort sem er?
Er hann ekki fluttur til Reykjavíkur?
Og hvað?
Er hægt að spyrja fólk í Reykjavík?
Varla er hægt að spyrja fólk í Reykjavík ef sá sem spyr er í Hafnarfirði?
Er símasamband á milli Hafnarfjarðar og Reyjavíkur?
Er eitthvað samband á milli Hafnarfjarðar og Reyjavíkur?
Er nokkur ástæða til að halda að það sé samband frá Hafnarfirði til staðar sem er ekki til?
Er ekki allt til einhversstaðar?
Eru þau lönd ekki til í heimi Andresar andar?
Er þá Reyjavík þar líka? Ljómar upp
Er ekki skemmtilegt hvað stafamissir getur leitt umræður á ókunnar slóðir?
Jú en er það ekki óskemmtilegt þegar haltur maður missir stafinn sinn og dettur?
Er ekki óskemmtilegt sama og skemmtilegt?