Já, tvisvar.
Hefur þú hætt við að hætta?
Oftar en góðu hófi gegnir.
Hefur þú snætt pylsu með rjóma?
Nei
Hefur þú séð kýr breytast í pulsu?
Kú! Hefur þú séð kú!
Nei.
Hefur þú þurft að bíta í tunguna á þér til að fara ekki að leiðrétta fólk sem talar vitlaust?
Já.
Hefur þú borið barr þitt?
Er eitt barr jafnmikið og tvö burr?
Hefur þú gert sultu?
Nei.
Hefur þú horft á einhvern gera sultu?
Já, reyndar. Ég sá margar kýr í á.
Hefur þú ekki getað komið þér að því sem þú ætla að gera því annað hvort truflar netið eða góða veðrið?
Já, netið truflar mig alltaf.
Hefur þú teikað bíl?
Já einu sinni... fyrir langa löngu.
Hefur þú séð setið á heyvagni á ferð?
Ójá! Oft!
Hefur þú bölvað þessari nútíma passasemi alls staðar svo það má ekki gera neitt skemmtilegt?
O-já. Já. Já.
Hefur þú gert eitthvað skemmtilegt og svo horft skömmustulega í kring um þig?
Já.
Hefur þú það ekki bara gott?
Aldrei.
Hefur þú dottið af baki?
Nei, ég held ekki, og þó, það getur nú verið.
Hefur þú farið að lesa margar síður af þessum þræði og fundist það hin besta skemmtun?