Þverslaufan er þægilegri
og þarfari en bindið
því snúra á hálsi er hlægilegri.
(Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið)
Fyndinn eru þér í þinni stöku
Þennan eiginleika gáfumenni virkja.
(Hjöp ég út og fékk mér kransaköku.)
Kanntu vel af gamansemi að yrkja.
Yrkja vil ég ljóð og land
(lærdómur er nám)
yfir kaldan eyðisand
ætla að planta trjám.
Á trjábelti allt vort líf ylti:
Að útrsýn ei lengur það spillti.
Í stað þess vil sjá
(og stara beint á)
stóreflis flettiskilti.
Skiltið napra er nágrannans
náðarskylda að höggva í spað
líkt og hefnir maður manns
(meira kaffi - eða hvað?).
"Hvaða, hvaða", hvergi nú
kvikum við frá stefnu.
(Hægri, vinstri, hægri, snú.)
Hefur stjórn enn fylgistrú?
Trúir þjóðin enska Íhaldinu bezt?
Ætli þeir finni réttu leiðina?
Er þá vinstri stefnan slæmska og slóða pest?
(Sleikti ég sósukönnuskeiðina?)
Sósukönnuskeiðina ég skal
skunda með þá veislunni er lokið
undir borð og yfir sprund og hal.
(Ætli nokkuð hætti blessað rokið?)
Rokið áfram rýkur,
rífur burtu tré,
Ofanaf fjöllum fýkur
fönnin - upp í hné.
Hnéskelin brast þegar hnaut'ann.
Með hnefa ég kjálkabraut'ann.
(Að lokum þarf línu
í limruna fínu):
Það var skáldhneigður róni sem skaut'ann.
Skautann máttu skilja eftir
skal ég hann þá brýna.
(Hjallar eru hérna reftir.)
Hann mun við það skína.
„Skín við sólu Skerjafjörður“
skilst mér hafi ort
Stuðmaðurinn Stefán Hörður.
(Stelpan mátar Hort.)
Hort gekk oftast hart um borð
með hrókinn sinn að vopni.
Kunni vel við konungsmorð.
(Kannski bar nú opni.)
Opnað hef ég upp á gátt
allar dyr og glugga.
Öðlast þannig æðri mátt
(úti er hríðarmugga).
Hríðarmuggan herjar á
horað skuggadýr.
Enga tuggu er að fá.
(Uppi skruggan býr.)
Býr í mér fjandans fól.
Fær það oft að hlaupa brjálað út.
Rekur upp roknar gól.
(Ræð ég þér að nota snýtuklút).
Snýtuklútinn snerti ég
en snar dró hönd til baka.
(Hef ég farið himnaveg.)
Hor mun varla saka.
Sakamálasögurnar,
(svefn- er -gjarn tjaldur)
og banamálabögurnar
býr til Arnaldur.
Stekkur hæð sína af gleði eftir að hafa skapað einhvern þann hræðilegasta hortitt sem lengi hefur sést