Dáð og margar dyggðir eru drýgðar í
Hondúras og Haítí.
Haítí er Hispanjólskur helmingur.
Í Dóminíku er dragsúgur.
Súgur fór um salinn, þá reis svefnug drótt.
Fnykurinn hvarf furðu skjótt.
Skjóttu þig og skerðu á háls og skíttu í brók.
Nei, bíddu aðeins, bara djók!
Djók er það hve Dje-listinn fær dágott safn
af atkvæðum þó aumt sé nafn.
Nafnið Bjarni Benediktsson ber í sér
Betri tíma í heimi hér.
Hér er ró og hér er friður, hér má oft
í friði þrýsti- losa -loft.
Loftið fyllist ljúfum ómi; lóu söng.
Dásemd er það dægrin löng.
Löngutöng ég löngum hef til liðkunar
og íþróttanna iðkunar.
Iðka margir ýmisskonar aulasport.
Vitleysu af verstu sort.
Sortulyngið sem að óx við Sandafell
virðist nú með vaxtarskell.
Skellinöðruskuggaverkaskukkurnar
hylja á sér hrukkurnar.
Hrukkurnar sem hef ég nú á húðinni,
ég fékk í bestu búðinni.
Búðin stóð í blómagarði, barst þar frá
ilmanin sem æsir þrá.
Þráinn minn er þrusuhress á þalíum
en værari á valíum.
Valíumið víst er gott að vera með
kannabis svo kárni geð.
Geðlyfin er gott að bryðja á gleðistundum
með Albertum og Ingimundum.
Ingimunds ég ætla nú að ybba gogg.
-inn. Hann telst svo ansi rogg-