Já
Hefur þú ræktað kyddjurtir?
Einu sinni stóð ég í einhverju svoleiðis... held það hafi mest drepist hjá mér.
Hefur þú borðað mandarínu um miðja nótt?
Gerði það nálægt miðnætti nú um helgina. Veit ekki hvort það telst með.
Hefur þú ákveðið að ganga út um jólin?
Ég er eiginlega bara búinn að sætta mig við þá staðreynd að ég gangi bara ekkert út, held ég verði bara inni.
Hefur þú gert eitthvað sniðugt í dag?
Nei. Sviðamessur eru einu messurnar sem jeg læt sjà mig ì.
Kanntu brauð að baka?
Ég datt eitt sinn hrikalega í brauðbakstur, verulega skemmtilegt, vaknaði á hverjum morgni með nýtt brauð úr brauðvélinni. Að vinna úr súrdeigi var mitt uppáhald, en því miður fara kolvetni og ég illa saman svo ég hætti því öllu saman og setti á hilluna með frímerkjarsafninu.
... en rósarækt, hefur þú prófað það?
Já, en það mistókst.
Hefur þú affryst ísskáp?
Já það er eitt af þí leiðinlegra sem hægt er að taka sér fyrir hendur.
Hefur þú lent í því að bæði fartalvan þín og farsíminn þinn bila í sömu viku?
Nei það held ég ekki.
Hefur þú verið með tvo farsíma í notkun á sama tíma?
Jamm, minn eigin og annan frá vinnunni. Asnalegt.
Hefir þú látið undan félaxlegum þrýstingi?
Nei, því miður,
en hefur þú sungið í kór?
Jamm, og var færður til á milli radda eftir því hvaða lag var sungið.
Hefur þú ánafnað auði þínum?
Nei, ekki enn.
Hefur þú átt kött?
Nei.
Hefur þú látið börnin þín koma í stað gæludýra?
Nei, ég strýk börnunum mínum ekki öfugt.
Hefur þú komið til Filippseyja?
Humm... nei.
Hefur þú matreitt og borðað fíflablóm?