Ég sá Davíð Oddsson í Melabúðinni um daginn (m.a.s. á afmælisdaginn minn).
Ég fór í Bónus áðan og sá þar sjálfann Ásgeir Kolbeins!
Eitt sinn vann ég eina viku hjá syni manns sem lært hafði eðlisfræði hjá sjálfum Níelsi Bohr.
Einn ég þekki mikinn mann,
metnaðarfullan sjarma.
Öll þið munið meistarann,
manninn köllum Jarma.
Á kjördag fór ég ásamt minni unnustu á flestar kosningaskrifsofunar. Þar sáum við t.d Steingrím Hermansson, Sigmund Davíð formann Frammsóknarflokksins, Felix Bergsson, Stefán Pálsson og Möggu sterku.
Ég sá Davíð Oddsson í Melabúðinni um daginn (m.a.s. á afmælisdaginn minn).
Náðiru að sparka í helvítið?Ljómar upp
Einu sinni sagði ég við mann á barnum að hann hljóti að vera úr Ýsjufjarðardjúpinu, alveg nauðalíkur þeim Kálfavíkurbræðrunum úr Skötufirði. Maðurinn sór það af sér og seinna rann upp fyrir mér að þetta var Egill nokkur Ólafsson...
Eitt sinn vann ég eina viku hjá syni manns sem lært hafði eðlisfræði hjá sjálfum Níelsi Bohr.
Það er skemmtilegt í ljósi þess að einu sinni er ég sat á Næsta bar settist við hliðina á mér gamall maður, áreiðanlega að verða áttræður, sem sagðist hafa lært eðlisfræði hjá Niels Bohr. Barþjónninn staðfesti þetta við mig en ég tók því með fyrirvara þangað til næsta dag að ég sá á wikipedia að Bohr dó ekki fyrr en 1962, sem gerir það vel mögulegt að hann hafi lært hjá meistaranum. Kannski var þetta sami maðurinn?
Tja, það er tæknilega séð möguleiki. Hvar er Næsti bar annars?
En þessi faðir mannsins sem ég vann eitt sinn hjá, var bóndasonur úr Skagafirði og fór utan nokkru fyrir heimsstyrjöld. Þegar svo Nasistar hertóku Danmörku, ákvað maðurinn að fara heim, hafandi klárað líklega tvö ár af náminu. Svo gerðist hann gegn óðalsbóndi heima hjá sér, en mun hafa kennt eðlisfræði við gagnfræðaskólann.
Eða kannski hafi verið nokkuð margir Íslendingar í læri hjá Níelsi?
Það gæti reyndar verið. Ég man ekkert hvað þessi maður hét nema hann var með gráðu í eðlisfræði frá danska háskólanum. Þá er þetta et.v. annar maður.
Hey, hey, á ég að segja ykkur, ha?! Ég þekki sko borgarfulltrúa í Reykjavík! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið