Einhvers staðar las ég að í kenningum Dr. Helga Pjeturs kæmi fram sú skoðun hans að draumar fólks séu í raun annar raunveruleiki á öðrum stjörnum. Þannig væru draumar í raun beint samband við líf á öðrum stjörnum.
Spurning: Getur regluleg neysla Kóbalts í æð, gert drauma (samband) skýrari og gæti slíkt ekki komið í staðinn fyrir dýrar stjörnusambandsstöðvar?
Það er alls ekki óvitlaus hugmynd.
Þetta þyrfti þó að vera vandlega unnin kóbaltlausn, blönduð af sérfróðum lyfjafræðingi - því bein innvortis neysla á kóbalti er að fenginni reynslu stórvarasöm.
EInnig fannst mér áhugaverð sú hugmynd sem hér kom fram fyrir allnokkru - hvort draumar yrðu ekki árangursríkari (ef svo má að orði komast) sofi maður í kóbaltrúmi
Þetta er náttúrulega argasta þvæla - kóbalt hefur gífurlega hátt ragonmagn og getur á skömmum tíma stíflað krans- og aðrar æðar með hræðilegum afleiðingum. Einnig hafa menn orðið bláir af neyslu þess, sem er ekki beinlínis hættulegt, en frekar hvimleitt.
Þetta með rúmið hef ég heyrt - og sannreynt.