Orðið skúraleiðingar er notað um raflagnir í vinnuskúrum.
Það var ekkert sérstaklega gaman á Þarfaþinginu í gær.
Þegar spáð er úrkomu á stöku stað er aðeins gert ráð fyrir því að það rigni á heimili hagyrðinga.
Það ætti alltaf að byrja að leita á Húfi þegar fólk týnist. Merkilega oft þá finnst fólk nefnilega heilt á Húfi!
Marmelaði rekur lausamjöll í súðum stórmarkaða.
Éljagangur er gangurinn sem liggur milli skúra og veðurstofu.
Rigningaskúrir eru byggingar þar sem fólkið getur verið á meðan rigningin stendur yfir.
Rigningaskúrir eru byggingar þar sem fólkið getur verið á meðan rigningin stendur yfir.
Góður!
Á Guam er kanski ræktað í tannstönglum
Það er jafn gaman hér í dag og það var í "gær".
Fábrotinn maður þarf lítið lím.
Ég er fábrotinn maður, enda hef ég engin bein brotið.