Er það ekki fornafn í hvorugkyni?
Er hægt að skilja það á annan hátt?
Verður það þá ekki lengur til?
Erum við til?
Ekki prósi?
Hvernig eru ekkiprósar?
Eru það skáldsögur?
Svona skrökulygisögur?
Eða kannski kvæði
Eigum við þá að æfa saman eitthvert lag eða syngja kvæði?
Eða hvort tveggja?
Er bæði betra?