Já en það hefur alltaf verið orðað sem "sagt upp".
Hefur þú rokið út af vinnustaðnum þínum og skellt hurðum?
Nei, ekki man ég til þess.
Hefur þú lesið stikksíður af Hefur þú þræðinum og undrast vinsældir hans fyrstu árin?
Já.
Hefur þú velt fyrir þér af hverju þessi þráður var svona vinsæll í upphafi?
Nei.
Hafið þjer íhugað að lýsa yfir allsherjarstríði gegn bókstaf hins illa ?
Nei. Það er maður í því djobbi eins og er. Glottir eins og fífl
Hefur þú lesið skáldverk eftir Björn Th. Björnson?
Nei, en held ég hafi einhverntímann flett Sögu daganna eftir sama kall.
Hefur þú gert klárt fyrir fokkings jólin?
Nei, en held ég hafi einhverntímann flett Sögu daganna eftir sama kall.
Hefur þú gert klárt fyrir fokkings jólin?
Saga daganna er víst eftir Árna Björnsson, þjóðháttafræðing.
Já ég gerði klárt í fyrra. Verst að ég þarf að gera það aftur í ár. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hefur þú rennt þér á skíðum niður áður ófarna fjallshlíð?
Nei, bara farnar hlíðar.
Hefur þú verið með óþægilegan hnút í maganum dag eftir dag?
Nei ekki dag eftir dag, oftast geri ég eitthvað í málunum.
Hefur þú ákveðið á Árni Björnsson Þjóðháttafræðingur sé óskrifand apaköttur og lét Björn TH. Björnsson skrifa allar sínar bækur fyrir sig?
Neibb, þetta hefir mér aldrei flogið í hug. Öll þessi meintu skrif Björns fyrir Árna hebbbðu örugglega stytt drykkjutíma Björns um of; svo ég tel þetta uppspuna hjá þér.
Hefir þú fylxt með NFL-deildinni í vetur?
Nei.
Hefur þú ákveðið að vera vondi kallinn hér eftir?
Nei, það er of illa launað og vanþakklátt starf.
Hefur þú sett rangt eldsneyti á bíl?
Jamm. Ósköp vandræðalegt.
Hefir þú lifað eingöngu á jólaöli, mandarínum og laufabrauði heilan dag?
Nei.
Hefur þú í hyggju að fara í kvikmyndahús í dag?
Já, Hobbitinn er á kvölddagskránni.
Hefur þú farið í fleira en eitt kvikmyndahús sama daginn?