Ert þú ekki einmitt rétti maðurinn til þess?
Hvað meinarðu með ekki rétti maðurinn?
Hver rétti manninn?
Viltu rétta mér hann?
Eru réttir ekki afstaðnar?
Þrettán réttir þá?
Er það ekki þannig í boltanum?
Hvað er þá þannig?
Er ekki þrettán réttir ávísun á vinning í boltatippinu?
Er þá greitt fyrir boltatippi með ávísun?
Eru boltatippi kúlulaga?
En hvernig eru þá kúlutippi?
Geta þau verið boltalaga?
Eða bollulaga?
Eruð þið að bollaleggja?