Smakka? Ég er löngu búinn að smakka, ég er að njóta.
Skál Kargur. xT
Forðast Úbba
Rambar inn á Kaffi Blút eftir ára fjarveru. Öll ljós eru slökkt. Köngulóavefur og ryk umlykur barborðið og stólana. Hugsar með sér að enginn hefur verið hér svo mánuðum skiptir. Labbar út.
Vill einhver gjöra svo vel að þurrka rykið af Galdra! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þú getur gert það sjálfur. Hendir tusku í Ívar.
Hendir Regínu í Galdra
Hendist utan í næstneðstu hilluna.
Fær óskaplegt hnerrakast.
Sækir ryksuguna
Hnerrar ógurlega
Veltir sér fram úr næstneðstuhillunni í rykmekki og pírir augunum út í sal
Hvað er allt þetta fólk að gera hérna?
Og af hverju er ekki búið að taka til, þurka af og, og, og?
Æ fjandinn.
Fer með ægilega galdraþulu og lemur í barborðið með heljarafli
Ægilegur hvinur heyrist og allt hverfur í ryki og dökkum mekki en þegar hann hverfur sést að allt er eins og nýtt, messing gljáir, góflin stífbónuð og upp í rjáfri hanga 10 nýþurkaðir færeyingar. Glös og flöskur í röðum í rekkum og hillum og Galdri í nýrri skikkju, hreinn og strokinn
GJÖRIÐ SVO VEL AÐ NJÓTA VEIGANA, FYRSTI UMGANGUR Á KOSTNAÐ HÚSSINS!
Stekkur hæð sína
Fær sér
Hvernig er það, á ég að sitja hér einn að sumbli? Nú jæja, þá er víst best að fara að fikta.
finnur rykfallna handtösku Hexiu og finnur töfrasprotann
HVISS BANG BÚMM sveiflar töfrasprotanum og breytist í allt of stóra leturgerð
AÁBCDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPQRSTUÚVWXYÝZÞÆÖ
aábcdðeéfghiíjklmnoópqrstuúvwxyýzþæö
SKRAMBANS!!!
Hristir hausinn svo skröltir gífurlega
Aldrei lærir þessi stafasúpa.
Þrífur sprotann af vandræðagemsanum og setur í svartholið og setur svo svartholið í næst neðstu hilluna og læsir
Best að geyma þetta þar til Hexið lætur sjá sig.
Breytir stafasúpunni í púnkt
.Brestur í óstöðvandi grát