Það vantar númer tvö.
Fyrir Krist og gullhring galt hann lífi. (Sigmundur Brestisson)
Gekk hann fram af þjóð á augabragði.
Sjónhvörf vill að senn hér alla hrífi. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson)
Að samtalsmeðferð drög hann eitt sinn lagði. (Sigmund Freud)
Sigmundur Ernir auðvitað...............
Aha, auðvitað! Maður þekkir ekki einu sinni vini sína í þessum búningi.
Oftast kennd við óðagot
iðandi á þingi lands
kanski kemst nú í sitt slot
kyntáknið sem kom frá frans.
Birgitta Haukdal
Birgitta Jónsdóttir
?
Birgitta Bardott
Birgitta Haukdal
Birgitta Jónsdóttir
?
Birgitta Bardott
ójá - en sú þriðja?
Birgitta Haukdal
Birgitta Jónsdóttir
?
Birgitta Bardott
ójá - en sú þriðja?
sú þriðja ekki komin eftir kvöldið!
Jú jú. Ljómar upp
Þarna komstu með það.
Fatta það ekki fleiri?
Hver hefur tíma til að glápa á imbann? Snýr upp á sig
Hvíta tjaldið klæðir vel.
Kom sér alltof snemma í hel.
Sleipur fangar slæma menn.
Sláturhús hans lifir enn.
Hvíta tjaldið klæðir vel. Kurt Russel.
Kom sér alltof snemma í hel. Kurt Cobain.
Sleipur fangar slæma menn. Kurt Cop (https://www.facebook.com/kurt.cop.9)
Sláturhús hans lifir enn. Kurt Vonnegut.
Vel gert Billi. Var reyndar með annan Kurt í huga í þriðju línu. Smá vís(u)bending:
Setur járn á sænskan durt
svikarana leiðir burt.
Í yfirheyrslu er spurt og spurt
af spæjara, með pí og Kurt.
Einn létt inn á dauðan þráð. Svarendur muni að rökstyðja svar sitt línu fyrir línu, þannig er lífið skemmtilegra.
Fór að greina galinn haus.
Gaf út bók um sprund sem fraus.
Loddari sem landinn kaus.
Leiddist Þrándar kristniraus.