— GESTAPÓ —
Fjórmenningagátur
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 59, 60, 61 ... 66, 67, 68  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 17/2/13 13:40

Er fjórða línan um Grím Atlason sem skipuleggur Airwaves?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 17/2/13 14:42

Wayne Gretzky mælti:

Er fjórða línan um Grím Atlason sem skipuleggur Airwaves?

Þetta er aðeins kvikindslegra en svo.
Grímur er gælunafn eða stytting af þeim nöfnum sem eiga við þriðju og fjórðulínu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 17/2/13 16:34

Þessi er hálfstolin... það er að segja vísbendingin í einni línunni hefur verið notuð áður en á við um annað nafn núna. Þessi gáta gæti verið of létt.

Af reynslu strengi strýkur sú
stýrir regnboganum nú.
Fimmtíuogsjö hún fegurst var
fim hún skatta rannsakar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 17/2/13 20:30

Bryndís.

Af reynslu strengi strýkur sú....... Bryndís Halla Gylfadóttir
stýrir regnboganum nú................. ?
Fimmtíuogsjö hún fegurst var....... Bryndís Schram.
fim hún skatta rannsakar.............. Bryndís Kristjánsdóttir.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 17/2/13 20:56

Regína mælti:

Grímur?

Sínist blár en segist grár. Grágrímur
Sagður meinabætir. Grímur græðari
Við hér forðum kendur klár.
Knár um loftin tætir.

Bara að færa yfir á síðuna svo hún gleymist ekki.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 17/2/13 21:45

Rétt. Það væri viðeigandi ef hlewagastiR myndi koma með síðustu Bryndísina.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 17/2/13 22:15

Ég skal koma með hana. Þetta er Bryndís Hlöðversdóttir, sem enn er Bifrastarrektor.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 17/2/13 22:25

Og ég sem hélt að um væri að ræða konuna hans Heimdallar. (Eða a.m.k. hjákonu hans.)

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 17/2/13 22:52

Neró drap hann, drottinn minn!
Dýrlingurinn, templarinn.
Lúta skaltu skipan hans.
Skýrir þróun snjallsímans.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 18/2/13 00:35

Prf, alltaf get ég bara fyrstu tvær og ekki meir, en það er víst í reglunum að það eigi að þegja þangað til maður veit um þrjá!
Símon Pétur og Símon Templar.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 18/2/13 14:45

hlewagastiR mælti:

Neró drap hann, drottinn minn!
Dýrlingurinn, templarinn.
Lúta skaltu skipan hans.
Skýrir þróun snjallsímans.

Simon Pétur vinur Jesú
Simon Templar (Dýrlingurinn sem Roger Moore lék)
Leikurinn "Simon says"
Simon punktur is - e-r heimasíða um snjallsíma

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 18/2/13 15:35

Jammz.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 18/2/13 20:51

Kastar fast með pompi og pragt
pilta þjálfar - glaður,
stríðnispúki stendur vakt
stjörnugöngumaður.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 18/2/13 21:11

Grislingur mælti:

Kastar fast með pompi og pragt
pilta þjálfar - glaður,
stríðnispúki stendur vakt
stjörnugöngumaður.

Logi Geirsson
Logi Ólafsson
Logi Bergmann Eiðsson
Logi geimgengill

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 18/2/13 21:33

[quote="Wayne Gretzky"]

Grislingur mælti:

Kastar fast með pompi og pragt
pilta þjálfar - glaður,
stríðnispúki stendur vakt
stjörnugöngumaður.

Logi Geirsson
Logi Ólafsson
Logi Bergmann Eiðsson
Logi geimgengill[/qu

jájá

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 19/2/13 02:43

Andskotann á eigin bragði felldi.
Orti sálma, færður þó í bann.
Álkuvatn í sápugerð hann seldi.
Síríusi forðum stýra vann.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Golíat 19/2/13 08:24

Kolbeinn ?

Andskotann á eigin bragði felldi. Kolbeinn Jöklaskáld
Orti sálma, færður þó í bann. Kolbeinn Tumason
Álkuvatn í sápugerð hann seldi. ???
Síríusi forðum stýra vann. Kolbeinn kafteinn

Fyrrverandi geimferða- og fjarskiptaráðherra, forðagæslumaður Bagglútíska heimsveldisins og keisaralegur hundahreinsunarmaður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 19/2/13 08:53

Síðasti er sennilega Kolbeinn Sigþórsson, seldur frá Alkmaar til Ajax.

        1, 2, 3 ... 59, 60, 61 ... 66, 67, 68  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: