Ertu abbó út í bangsa?
Sænskur negri í nautahjörð.
Napur skröggur Karls af Gá.
Í skugga Friðriks, forlög hörð.
Frægs er konungs afi sá.
Var hún svona erfið, þessi?
Hún er snúin Hlebbi.
Já, sennilega er hún það. Það er erfitt að hitta á þetta þrönga bil á milli laufléttrar og hrikalega erfiðrar. Ég bæti kannski við fimmtu línu þegar menn gefa merki um að þeir séu alveg lens.
Þessi er kannski þung - en þið getið jú allt, er það ekki?
Messíasaraðdáandi meiriháttar var hann.
Miðaður við soninn var hann herforingi rýr.
Arpeggíur speglaðar á nótnaborðið bar hann.
Hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu býr.
Mig langar að vita hvaða Filippusar þeir tveir seinni eru.
Góð er gáta þín, Gestumblindi, getið er þeirrar. Ég er alveg lens. Minni þó á að hinir tveir eru ekki enn komnir - smá vísbending - þeir heita Philip.
Sænskur negri í nautahjörð
Napur skröggur Karls af Gá
Í skugga Friðriks, forlög hörð
Frægs er konungs afi sá.
Vísbending:
Negrinn treður nokkuð vel.
Napra skrögginn Karl til bjó.
Skuggamann ég tóra tel.
Téður afi í fornöld dó.
Útlendngar eru þeir
ekki verður hintað meir.
Sænskur negri í nautahjörð.
Napur skröggur Karls af Gá.
Í skugga Friðriks, forlög hörð.
Frægs er konungs afi sá.
Jóakim?
Jóakim Noah Sænskættaður körfuboltastrákur í Síkagó Bulls
Jóakim frændi Andrésar andar - Carl Barks skóp þessa fjölskyldu
Jóakim litli bróðir Friðriks danaprins
Afi Jesú - sennilega í móðurætt
gúggl!
Gamli góði Grislingur klikkar ekki á neinu!
Hann er ótrúlegur. xT
Þessi er kannski þung - en þið getið jú allt, er það ekki?
Messíasaraðdáandi meiriháttar var hann.
Miðaður við soninn var hann herforingi rýr.
Arpeggíur speglaðar á nótnaborðið bar hann.
Hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu býr.
Mig langar að vita hvaða Filippusar þeir tveir seinni eru.
Philip Glass er sá þriðji, en hvaða Philip býr þá hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu?
Það mundi vera Philip J. Fry, aðalpersóna Futurama teiknimyndaþáttanna eftir Matt Groening.
Fyrsta átti eigin sveit.
Önnur fílar Jóna.
Þriðja útvarps erjar reit.
Ein var fyrir skóna.
Svarið vitnaðist mér ekki í nótt, eins og ég hafði vonast eftir.
Hét hún ekki Sylvía sú sem átti alla skóna? Eða hvað hét hún aftur?
Var það ekki Imelda Marcos? Skiptir ekki máli íþessu tilviki.
Fyrsta átti eigin sveit.
Önnur fílar Jóna.
Þriðja útvarps erjar reit.
Ein var fyrir skóna.
Hvað með Andrea:
Gylfadóttir í Todmobil
Unnarsdóttir (glæpakvendið sem var að fá dóm - gift Jóni)
Jónsdóttir á RUV
Skóframleiðandi í L.A.