Velkominn er Vímus hér
vaknaður úr roti.
Þó hann reini að þurka sér
þaulsætinn er bloti.
Víða hefur Vímus þambað
Vodka spritt og landa sull.
Víða hefur Vímus þambað
Vodka spritt og landa sull.
marga hefur mey í rambað
rofið þeirra himnu gull
Fyllibyttan furðu sá
fleka rak á hafi
Fyllibyttan furðu sá
fleka rak á hafi
Yfir hafid hann ser bra
halfvegis i kafi
A Thailandi er Tappinn sa
trubod varla ad boda
A Thailandi er Tappinn sa
trubod varla ad boda
mættur er hann meyjum hjá
margt er þar að skoða
Endar núna ótíðin
aftur veður lagast
Endar núna ótíðin
aftur veður lagast.
Snýr svo aftur snjóhríðin
Snöggt þá færi bagast.
Bjart er yfir Betlehem
en bísna dimmt á Gasa
Bjart er yfir Betlehem
en bísna dimmt á Gasa
Slegist er um Atla sem
allir hér um þrasa.
Veist'um tannkremstúbuna?
týndi henni áðan.
Veist'um tannkremstúbuna?
týndi henni áðan.
Ég sett'ana alla í súpuna
(sem er víst gott fyrir kláðann)
Þegar hittir maður mann
í menntastofnuninni
Þegar hittir maður mann
í mentastofnuninni.
Þeir gera allan andskotan,
absalút þar inni.
-----------------------------------------
Æði á hann Rúdolf rann
rosalegt um daginn.
Æði á hann Rúdolf rann
rosalegt um daginn.
Með jólasveininn henntist hann
á hundasleð'um bæinn.
Gríla verður glottuleit
ef grenja litlu börnin
[b]
Gríla verður glottuleit
ef grenja litlu börnin.
Bústin er og fjarska feit
fúl er hennar görnin.
------------------------------------
Gamli skröggur Leppa lúði
lötrar brátt af stað.
Gamli skröggur Leppa lúði
lötrar brátt af stað
í leitina að Snældu og Snúði
sneyptur. Það lá að.
Það næstversta sem skrattinn skóp
var skammdegi að vetri.
Það næstversta sem skrattinn skóp
var skammdegi að vetri.
Langt um verst er læknadóp,
lýgin sjálf er betri.
Vel ég höndla myrkrið mjúkt
meðan hlýtt er inni
Vel ég höndla myrkrið mjúkt
meðan hlýtt er inni
á kynlífið er kallinn húkt
með kellingunni sinni.
myrkur hentar miðri nótt
sem mögnuð skugga geymir.
myrkur hentar miðri nótt
sem mögnuð skugga geymir.
Tifi höndin títt og ótt
táplega þig dreymir.
Jólin okkur jagast á
með júðaljós í gluggum
Jólin okkur jagast á
með júðaljós í glugga.
Jólaljósin þreittir þrá,
þurfalinga hugga.
---------------------------------------
Ljósin fögru gul og græn
gleðja börn um jólin.
Ljósin fögru gul og græn
gleðja börn um jólin.
Er lappi greyin lemur væn
og líil hnoðar tólin.
Glóðaraugun gagnast best
í grefils skammdeginu.
Glóðaraugun gagnast best
í grefils skammdeginu.
Þeirra án ég sjaldan sést
á svörtu malbikinu.
Kaupmenn landsins, kátir mjög,
knýja markaðshjólin.
Kaupmenn landsins, kátir mjög,
knýja markaðshjólin.
En áfram nýtir húsfrú hög,
hnappinn flibb' og kjólinn.
Jólastressið slær á best
sneysafullur baukur.