Það var amk örugglega ekki það besta að mörkin skyldu fjúka af fótboltavellinum..........
Ég enduruppgötvaði hvað er gott að búa í Reykjavík.
Að ég gat sett bréf í póst í staðinn fyrir að fara í umferðarhnút dauðans með það alla leið sjálf.
Ég varð vitni að frábærri uppákomu við fjárrag á bæ einum hér í grenndinni. xT
Vakning dagsins var það besta hingað til. Hann er þó eigi alliðinn.
Að komast heim í heita sturtu og háma síðan í mig enn heitari fiskisúpu, hnausþykka. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Vér bændurnir gjörðum góð skil á rútu af bjór meðan við redduðum seinni mjöltunum.
Að rekast á Vímus hérna í Baggalútíu. Það er hressandi.
Ertu í háskóla?
Já.
Þekkirðu Guðrúnu?
Starir forviða á stúlkuna og á varla orð.
Var að hlusta á auglýsingalestur á RÚV; dagar myrkurs á Austurlandi og á meðan flökti rafmagnið og ljósin blikkuðu. Hvað skyldi slík auglýsing kosta úti í hinum stóra heimi?
Ég komst heim.
Ég komst tvisvar heim við illan leik.
Híar á Garbo.
Ekkert meira jólaskraut Ljómar upp