Hoppa kátur út um allt
enginn kann mig stöðva.
Svon' er að þamba mysu og malt,
magnar fjör og vöðva.
Vöðva stæltur Steingrímur
stendur út' á hlaði.
En herðabreiður Hallgrímur
hrítur yfir blaði.
Blöð að lýðum ljúga,
ljósvakinn hið sama
falsar hverja frétt.
Fáu er tryggt að trúa,
talnafalsi og drama
snýtir snápa stétt.
Réttast væri að reka burt úr landi
rotna lygamerði, fulla af hlandi,
skoltmýlda með skosku taulímbandi
skarna, pestó, hummus, miltisbrandi.
Miltisbrandur er voðans vá
vírus hroðalegur.
Bráðapest er hrausta hrjá,
heljar voðalegur.
Voðalegur væskill er hann
Vandráður.
En Savate að sönnu ver hann,
í Savate af öðrum ber hann.
(Mmmmmm... Flugrás 714 til Sydney. Ljómar upp)
Hann mun yrkja hundrað ljóð
hér
Lipur æ á andans slóð
er
Er á slóðum óðar
ævinlega séður,
Lappi, langþráður.
Þylur fróðleik þjóðar
þulur fræða téður.
Vís er Vandráður.
Þó er kappinn þrjóskur eins og sauður,
þvoglumæltur, furðulega blauður,
heilabúið himingeimur auður
og hlusta á manninn þykir raun og nauður.
Nauðin ýmsa í heimi hrjáir
hamlaust strt.
Dapurt er hve líðnum ljáir
lítið vit:
Lappi: Ýmsa nauð í heimi hrjáir væri betra. Losar úr lágkveðum.
Vit með gáfum góðum
gefist hefur flestum
Vart, því miður, mér.
Sinnis rúinn sjóðum
sálar hrjáður pestum
eins og altzheimer.
Svona er ég suddalegur auli
sveins- finnst enginn gæfuminni -stauli.
Ljóðin mín þau líkjast fölsku gauli
líkt og kálfur sullaveikur bauli.
Bauli hver sem best hann kann
Baggalúts á síðum.
Þannig gleður maður mann
mitt í heimi stríðum.
Stríð út brýst um stjórnarlög
styðja má og hafna
Þjóðin sundrast rugluð rög
rifrildunum safna
Safnast hjá mér dót og drasl
og dútla við að laga
Lögunin er bölvað basl
brasað alla daga.
Daginn út og daginn inn
dreymir mig það sama.
Að ég sé Helgi heljarskinn
hortug myndar dama:
Daman mín frá Damaskus
drekkur hreinan spírítus
því dauðans nauð og dýr vandi
er daglegt brauð í Sýrlandi.
Í Sýrlandi var sumar gott
í svoldið bláum skugga.
Núna er það allt á brott
og apar landið grugga.
Grugga bráðum bæjarlækinn
bæði þeir sem austan við
búa, og þeir sem flytja frækinn
fréttabrag að vestansið.
Siður vondur fælir frið
fjandskap ljótan seyðar,
bæjarlæk ei berjumst við
best að nota heiðar
Heiðarsnyrtir hefill er
í Hrútafirði.
Yfir Holtu einatt fer.
Einhvers virði.