Dorit lokk góðan gefur
í góðgerðarskyni,
Enda mikið hárið hefur,
handa Óla Grímsasyni.
-----------------------------------
Ljóðadísin dásamleg
dvelurenn á lútnum.
Ljóðadísin dásamleg
dvelur enn á lútnum.
Glöð við rötum vísnaveg
Víst með ölsinskútnum
Stanslaust regnið, storm og él
styttir upp um síðir
Stannslaust regnið storm og éi
styttir upp um síðir
Austur í Flóa vætir vel
vattna lækjir stríðir.
--------------------------------------
Úti drinur dimmir að
dalafólkið sefur.
Úti drynur dimmir að
dalafólkið sefur
breytist svo i bjartan stað
bjarma sólar gefur
Gera ætla allt i dag
ef ég nenn' á fætur
Gera ætla allt i dag
ef ég nenn' á fætur.
Nú er færi. Nú er lag
að nálgast Evudætur.
Steinríkur á fætur fer
fyrstur manna.
Steinríkur á fætur fer
fyrstur manna.
Strax að morgni virðist ver
vísur kanna.
Fljótlega hann fann þar Svein
froskinn góða
Fljótlega hann fann þar Svein,
froskinn góða.
Sem allra græðir manna mein,
mestur fræðasjóða.
Sunnudags á morgni mér
margoft fallast hendur.
Sunnudags á morgni mér
margoft fallast hendur.
Stundum þá af öli er
eitthvað pínu kenndur
Djöfull mikið drekka má
og dansa oft um helgar
Djöfull mikið drekka má
og dansa oft um helgar.
Þótt frekar hlusti allaf á
Edward Elgar.
Í afmæli nú ætla senn
illa þunnur.
Í afmæli nú ætla senn
illa þunnur.
Vill þar hitta víf og menn
vökvast brunnur
Vín svo forðast, vinna þarf
virka daga
Vín að forðast,vinna þarf
virka daga.
Hugsa þarf umm tík og tarf
og túngirðingar laga.
---------------------------------------
Heima á túni lítið lamb
lúrir hjá mömmu sinni.
Heima á túni lítið lamb
lúrir hjá mömmu sinni.
En pabbinn leggst í landaþamb
í loftkytrunni inni.
Á Alþingi er alltaf fjör
og allir vinir.
Á Alþingi er alltaf fjör
og allir vinir.
Einn ráðherrann nú ruglar ör
og rífast hinir.
Lifir um það lítil sátt
að leikið sé nú Djúpið
Lifir um það lítil sátt
að leikið sé nú Djúpið.
Fyrr var oft í koti kátt
karlar biðjið,krjúpið.
------------------------------------
Við það karlinn missti mátt,
mæddur varð á svipinn.
Við það karlinn missti mátt,
mæddur varð á svipinn.
Enda. gladdi augað fátt
ekkert leist á gripinn
Stöðugt viljum eitt og annað
yrkja frjó af gleði
Stöðugt viljum eitt og annað
yrkja frjó af gleði.
Enda löngu sýnt og sannað
að séum veik á geði.
Allra fyrir að mæla munn
er meir'en hæpið.
Allra fyrir að mæla munn
er meir'en hæpið.
skála oft úr skálda brunn
æ skerpir slæpið
Milt hér skin af morgunsól
marga gleður
Milt hér skin af morgunsól
marga gleður.
Læðist húmið yfir hól,
hungrið seður.
Bágt á orðið búandinn,
barnið grætur mikinn.