Strokklokalok
Ég er aldinn, karlinn kaldi
klofinn físibelgur.
Í gröf ég valdi glas í haldi
ég gamli drykkjusvelgur.
Barbie:
Oft ég er sem gömul geit
og gjamma hér og væli.
Flest ég held en fátt ég veit
- og flyt hér öfugmæli....
Hvar hefurðu verið? Og ætlarðu að koma aftur?
Barbie:
Oft ég er sem gömul geit
og gjamma hér og væli.
Flest ég held en fátt ég veit
- og flyt hér öfugmæli....
Bestu þakkir bætir líðan
baga þín og ljóð
kvöldi hallar, kveður síðan
kvöldsvæf þetta fljóð.
Hvernig ertu í honum?
Hvar hefurðu verið? Og ætlarðu að koma aftur?
og
Hvernig ertu í honum?
Sjá:
Spurðu (í bundnu máli) og ég svara (í bundnu máli)...
Regla: Frumsamið helst, allavega ekki eitthvað dægurlag...
Svannar tárast, söknuður verður
sértu fjarri oss að vonum,
hvar varstu, hvert ferðu...Rrrrrrrrrrrrrr
hvernig ertu í honum?
Fyrir strákana sem kunna ekki að setja saman reglur eða lesa vísur . Eða öfugt. Veit ekki alveg hvort ég vilji vita síðasta svarið en maður verður að taka því sem að höndum ber. Starir þegjandi út í loftið
Í stuðlinum er hann sterkur
í stafninum er hann klár.
Í makrílnum er hann merkur
í munninum er hann frár.
Eða voruð þið ekki að spurja um eitthvað af þessu?
Genið vísnanna virkja,
vesenast líkt og í konum
hamast hás við að yrkja
hvernig ertu íonum!
Ertu að pota, piltur minn, í píonum?
Drölsi að brynna í dýjonum?
Durex-laus í rýjonum?
Eftir drátt hjá Dagbjörtum og Díönum,
- hvernig ertu í íonum?
Aumur, eða í skýjonum?
Ertu að pota, piltur minn, í píonum?
Drölsi að brynna í dýjonum?
Durex-laus í rýjonum?
Eftir drátt hjá Dagbjörtum og Díönum,
- hvernig ertu í íonum?
Aumur, eða í skýjonum?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Skáldin eru ský í buxum,
Skabbi ertu einn af þeim ??
pasturslitlir pó´ að hugs´um
perrakvöld og dónageim.
Aaaa hvað er gott að vera skáldpói. Eins og Hlewagastir. Og Skabbmeister generall. Luvlí vísa Hlebbi. Ertu í skýjonum?
Kvakar á Heimskautafroskinn
Hvernig æxlast árið nýja?
ertu hættur dópiu?
mun sjást sól á milli skýja?
muntu hætta skrópinu?
Hvar ertu, hvert fórstu,
hvað ertu að gera?
ástu tertu, áttu fóstru,
ertu kominn til að vera?
SKABBI, HVAÐ Í GRÆNMYGLUÐUM GÓMORRANUM ER HÉR Í GANGI? HVAR ERU SVÖRIN - Í BUNDNU?? Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hef verið vant viðlátinn... svör innan skamms..
Hef verið vant viðlátinn... svör innan skamms..
xT Gjörðu svo vel, smá skáldamjöður til að koma þér af stað.
Hvað er satt og hvað er rangt?
Hvenær ferðu yfir strikið?
Hvað er stutt og hvað er langt?
Hvenær verður mikið mikið?
Ég virði þig ei til vamms
væni Skabbi.
Held þó haga kvabbi:
Hvenær er „innan skamms“?