Ég mæli með Víðistaðatúni í Hafnarfirði!
Samþykkt - þá getur maður m.a.s. gengið heim ef eitthvað kemur uppá, áfengismagn gerir akstur ólöglegan og engir leigubílar fást (vjer heyrðum ónefndan stað í Hafnarfirði eitt sinn kallaðan leigubílakrummaskuð dauðans þannig að þessi hætta er veruleg).
Það verður sumsé engin lokun? Klórar sér í höfðinu
Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um það - ég er orðinn vanur lokun og er eiginlega farinn að reikna með henni. Það er líka dæmigert að einmitt sumarið sem ég hefði langt í frá grátið lokun skuli ekki verða af henni.
Dona dona... þetta verður allt í lagi... Stingur Ákavítispela upp í Þarfa
p.s. ég ýtti óvart á Ctrl Þ og allt minnkaði, hvernig laga ég það til baka?
Ctrl-0 (núll)
Þakka þér kærlega hlebbi minn... xT
Nú er Ritstjórn farin í sumarfrí, og það gerum vér einnegin.