Neðri brún á nærhaldinu
í nára Svenna skar.
Fór að saga í framhaldinu
fúaspýturnar.
Fúaspýtur Svenni sagar
setur þær í hrærivél
Sauri og spýtum saman lagar
Seinna dreifir þessu á mel.
Melting boðar hægðahnig
er hörðum lurki steypir.
Leysir nærhald niðrum sig.
Neðri-Brúnum hleypir.
Hleypur nú vindur með veglegu rokin
viðvörun berst nú um sveitir og torg
bindum allt niður því fésbók er fokin
festum allt lauslegt í þessari borg.
Borga vil ég bíla, hús,
bústað, þyrlu, kúlulán.
En heimsins kaup er hungurlús,
hagyrðingsins mesta smán.
Smánarlegur Smjörvi er
smjerið betur reynist.
Sneiðin góða bragðið ber
best ef það á skeinist
Skein yfir landa glas á gleðivegi
og glóðað hass í silfurpappírs mynd.
Prúðbúnir djamma piltar jafnt að degi
sem purpuranóttu. Unir halur synd.
Synt ég hef í sjó og tjörn,
synt ég hef í á og læk.
Buslað líkt þá tók hún törn(er),
Tina forðum meður Ike.
Æki jafnframt heitir hlass.
Hlaunir nefnast einnig rass.
Kannabis má kalla hass
en konan þín er bara skass.
Skass er tappi tíkarrass
tóbaksskjóðu dóni.
Fílupoki,hlunkur hlass
hælismatur róni,:
Rónabuxnaræfilsgrey
rotið inn að beini,
taldi sannað: „Hold er hey“,
en hlálegt: varð að steini.
Steini þolir storm og él
stórvel.
Í stormu líður Steina vel.
Stígvél.
Stígvélinu Steini
stal frá honum Bjarna.
Var því margt að meini,
mönnum fátt til varna.
Varnarliðsins verkin góð
vörpuðu' á það töfrabirtu' og miklum ljóma.
Kynbætti það kléna þjóð
Krakkarnir þeir gera landi voru sóma.
Sómakær í svefni vær
sýnist Stína heima.
Blaut og ær við blund þó nær
býsn með fýsn að dreyma.
Mig dreymir bæði dag og nótt
í djúpu arnarslabbi
að bjórsins ætti Boðnar gnótt
Barba- líkt og -pabbi.
Pabbar vísna erum og
yrkjum rím við fastir.
Fljótur andans fyllir í trog
fróður hlewagastiR
hlewagastiR getur fátt,
og grætur einn í kodda.
Í sér finnur engan mátt.
yrkir lítinn grodda.