Horfir á eftir blútnum ofan í Billa Áttu annan?
Gramsar á barnum og finnur ekki neitt
Við skulum tékka yfir á hagyrðingamótsþræðinum. Skottast á milli þráða
Ohh bauv komdu og knúsaðu mig.
Heilir og sælir, vinir góðir. Hér bjóðum vér blút á línuna, áður vér hverfum til annarra verka.
Þyggur blút með þökkum
Já hér er nú gott að koma og tylla sér, pantar sér volgar kleinur og ískalda mjólk
Sest við grútskítugt barborðið
Er einhvur að afgreiða hér? Mig sárvantar ákavíti, helst blandað í skolp eða sápuvatni.
Hví er svo þunnt í glösin hellt, það lekur varla, og ekki er það við suðumark, ó nei, því í ósköpuðum óskapnaðinum? Við viljum drykki, já drykki, við villjum drekka drykki, ekki kyrkja Grykki, drekka drykki, og drekka þá þá, ekki getum við drukkið loft, hvar er öll þjónustan og allt eftirlitið, við viljum frið, frið, frið og drekkanlega drykki til að drekka, við þurfum drykki!
Skál!
Fer út í horn í massafýlu, og ákveður að lakka sundfitin skærbleik til að stuða litapalettu Fergesjis ennþá meira
Heilaga ritstjórn! Það var svo ...ehm..gaman hjá mér í fýlunni, já, eða, jú, að ég steingleymdi að koma aftur.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
En mér sýnist þið svosem ekkert hafa saknað mín átakanlega mikið. Svo ég ætti kannski bara að fara aftur í fýlu, þarf hvorteðer að lakka sundfitin appelsínugul aftur...

Rekur rykfallið og úldið trýnið út úr næstneðstu hillunni undir blútkrananum
Jú vertu bara áfram í fýlu.
Skellir á eftir sér
Rekur inn nefið Jaja, það er bara sona. Vertinn rykfallinn undir borði. Þá hlýtur að VERA SJÁLFSAFGREIÐSLA!!! FYRST AÐ GALDRI VAKNAR EKKI!!! Sér enga hreyfingu þrátt fyrir hávaðann
Tegir sig inn fyrir barborðið í átt að Hennessy XO coniakinu...

Teygir sig út með hraða cobraslöngu og slær Huxa leiftursnöggt í höfuðið
Nennir ekki að vera í fýlu lengur
Mallar kakó bara handa sér
Mmm... þetta er lífið! Ljómar upp
Sýpur á kókólíkjör, og horfir á Hexiu ágirndaraugum.
Kakóið sko.
Nei, það hljómar ekkert skár.
Er einhver leið út?
Stingur sér út um gluggann.
Vaknar við að yndislegur ilmur kitlar nefið
Mmmmmm? Slurp.
Bröltir út úr hillunni með slíku offorsi og djöfulgangi að hurðin þeytist af og endar sem tannstönglahrúga við hliðina á arninum og engu er líkara að tveggja tonna ryksprengju hafi slegið niður bak við barinn.
KAKÓ!