Frítt er alltaf fæðið best.
Fælist ég ef sit ég hest.
Frítt er alltaf fæðið best.
Fælist ég ef sit ég hest.
Fleiri rúmar lengri lest.
Frítt er alltaf fæðið best.
Fælist ég ef sit ég hest.
Fleiri rúmar lengri lest.
Lyginn skaltu vígja prest.
Landinn étur lömbin mörg.
Löngum var hún Gunna örg.
Landinn étur lömbin mörg.
Löngum var hún Gunna örg.
Ljóðin samdi Látra-Björg.
Landinn étur lömbin mörg.
Löngum var hún Gunna örg.
Ljóðin samdi Látra-Björg.
Lærði ég þau út í hörg.
Kjörfarsið er kjarnfóður.
Kamfýló er skarnfóður.
Kjörfarsið er kjarnfóður.
Kamfýló er skarnfóður.
Bjarni Ben er snaróður.
Kjörfarsið er kjarnfóður.
Kamfýló er skarnfóður.
Bjarni Ben er snaróður.
Bundið vatn er hjarnsjóður.
Vatnið það er vott og kalt.
Víst er hollt að borða salt.
Vatnið það er vott og kalt.
Víst er hollt að borða salt.
Dýrðlegt er að drekka malt.
Vatnið það er vott og kalt.
Víst er hollt að borða salt.
Dýrðlegt er að drekka malt.
Í dögun hætt'að sofa skalt.
Á kjálkunum vex körlum skegg.
Frá klárunum má greina hnegg.