Bóndanagsins bíðum vér,
brátt fást súrir pungar.
Á konudag að kjósa sér
kerlingarnar ungar.
Þorravetur þreyjum nú,
þráum sól og blíðu.
Bóndanagsins bíðum vér,
brátt fást súrir pungar,
Þegar ég á fætur fer,
finn ey hreðjar þungar.
Þorravetur þreyjum nú,
þráum sól og blíðu.
Undir sæng ég fer með frú
á flatsænginni víðu.
Drifhvítt fellur vatn á veg,
víst er bjart að líta
Drifhvítt fellur vatn á veg,
víst er bjart að líta.
Mótar formin margvísleg
mjallarundrið hvíta.
Með iðnaðarsaltið út ég fer,
enn er fönn á stæði
Með iðnaðarsaltið út ég fer,
enn er fönn á stæði.
Þegar á svellið það ég ber
þykir mér aukast flæði.
Framleiðendur fýla grön,
á flakið dreyfa salti.
Framleiðendur fýla grön
á flakið dreyfa salti.
Erum ýmsu vondu vön
vælir gamli Hjalti.
_----------------------------------
Salt í grautinn maður minn
mömdlu og sveskjur líka.
Salt í grautinn maður minn
mömdlu og sveskjur líka.
Taumar leka af tungu á kinn
tel ég veislu slíka.
Alkóhólið, orkuríkt,
yljar mér í nauðum.
Alkóhólið, orkuríkt,
yljar mér í nauðum.
Er einnig gott og gaman ýkt
að gæða sér á sauðum.
Spliff og donk og gengju gula
gaman væri' að eiga.
Sniff og donk og gengju gula
gaman væri'að eiga.
Algjör della þessi þula
þrsið aðrir meiga:.
-----------------------------------
Algjört er hér bull og blaður
bæti einkver hérna við.
Algjört er hér bull og blaður
bæti einhver hérna við.
Enda Lappi léttruglaður
og langar síst að halda frið.
Úti er alltaf að snjóa
ofan á bílinn minn.
Úti er alltaf að snjóa
ofan á bílinn minn.
Fer on'af honum að flóa
er fer af stað hlýnandinn.
Fastur í brekku frítt ég spóla,
fer svo á næsta bíl.
Fastur í brekku frítt ég spóla,
fer svo á næsta bíl.
Út á nes ég heldur hjóla,
hér sést ekki í gróinn díl.
----------------------------------
Daginn út og daginn inn
dunda ég mér heima.
Daginn út og daginn inn
dunda ég mér heima.
Dinglandi með drösulinn
drekk ég til að gleyma.
Með öl í glasi, opna bók,
úldna hákarlsbeitu
Með öl í glasi,opna bók,
úldna hákarlsbeitu.
Át og lestur tíman tók
og trú á kjöti feitu.
-----------------------------
Ennþá í mér barnið blundar,
og bernsku minnar traust.
Ennþá í mér barnið blundar,
og bernsku minnar traust.
Æfinlega andin skundar
enda- þangað –laust.
Dátt við undi drykk og brjóst
drós þá var að totta.
Dátt við undi drykk og brjóst
drós þá var að totta.
Er sykurinn þau sjúga er ljóst
að senn þau fari að glotta.
Hef ég á því hugann nú
að hrunið ennþá ríki.
Hef ég á því hugann nú
að hrunið ennþá ríki.
Ráðlegt tel ég rétt um þrjú,
að ríkisstjórnin víki.
Verðbólgan hún vex með stæl,
vaxtastigið magnast.
Verðbólgan hún vex með stæl,
vaxtastigið magnast.
Spariféð svo fer um hæl,
fávitarnir hagnast.
Glóir nú allt gull á ný,
gefum skít í svörin.
Spennum beltin, spýtum í,
spólum dýpra í förin.
Þyngist róður, þykknar loft
þreytu fer að gæta.
Þyngist róður, þykknar loft
þreytu fer að gæta.
Nú ég hugsa ansi oft
að enginn muni úr bæta.
Undarlegt með orðinn hlut
hve ýmsir vilj'ann breyttann.